
Einkaþjálfarinn er nýjung á íslenskum tölvumarkaði. Um er að ræða persónulega kennslu og þjónustu fyrir viðskiptavininn. Til að bóka tíma, einfaldlega fyllið út eyðublaðið hér að neðan og hann hefur samband við þig innan sólarhrings.
Hjá einkaþjálfaranum velurðu þinn eigin hraða á kennslunni og lagar hana að eigin þörfum. Hann hjálpar þér með allt sem snertir makkann og umhverfi hans, ásamt uppsetningu á forritum á borð við Mail.
Einkaþjálfarinn er við á mánud., þriðjud. og miðvikud. á milli kl. 10 og 15 í verslun okkar Laugavegi 182.
Athugið að aðeins er tekið við bókunum á netinu.
Hálftími hjá einkaþjálfaranum kostar aðeins 3.990 kr.