Byltingarkennd tölva frá Apple, sem ber heitið iPad, var kynnt til sögunnar í dag.
iPad er smátölva með fjölsnertiskjá, sem byggir á umhverfi líkt og er að finna í iPhone og iPod touch. Möguleikarnir eru þó mun meiri, því m.a. verður hægt að innsetja hugbúnað á borð við iWork og þannig búa til kynningar, textaskjöl og fleira á tækinu og vista.

Allar gerðir af iPad hafa 9,7-tommu IPS skjá með LED-baklýsingu, 1GHz Apple A4 örgjörva, þráðlaust netkort (Wi-Fi), Bluetooth 2.1, innbyggða hátalara og hljóðútgang. Sérútgáfa af iPad verður fáanleg með 3G neti.
Með iPad fylgir ýmis hugbúnaður á borð við; Safari, Mail, Photos, YouTube, iTunes, App Store, iBooks, Maps, Notes, Calendar, Contacts og Spotlight. Þar að auki fást yfir 140.000 forrit og leikir í App Store versluninni. Rafrænar bækur verða einnig fáanlegar í iBooks forritinu.
Rafhlöðuending á iPad er ein sú mesta sem þekkist í smátölvum, en hún er allt að 10 klst. á þráðlausu neti.
Tækið verður fáanlegt með 16GB, 32GB og 64GB flash-drifi og verða til tvær útgáfur af hverri stærð; Wi-Fi og Wi-Fi + 3G.
Samkvæmt Apple verður iPad fáanlegt í lok mars, en erfitt er að segja til um nákvæman afhendingartíma að svo stöddu.
Verð ásamt áætlaður afhendingartími verður tilkynntur sérstaklega hér á fréttasíðunni og á póstlista okkar.
Með öllum iPod nano, iPod classic og iPod touch keyptum hjá okkur fyrir jól fylgir 2000 kr. inneign á Tónlist.is.
Viðskiptavinir fá afhent kort með inneignarkorti sem inniheldur kóða sem þeir virkja á vefsíðunni.
Nánar um Tónlist.is í fréttinni hér að neðan.Með öllum keyptum tölvum hjá okkur fyrir jól 2009 fylgir:

Tónlist.is er stafræn tónlistarþjónusta sem starfar í sátt við hagsmunaaðila tónlistarlífs um víða veröld. Á Tónlist.is má nálgast stærsta safn íslenskrar og erlendrar tónlistar sem völ er á hér á Íslandi. Vefsvæðið hefur að geyma stærsta safn útgefinnar tónlistar á Íslandi auk fjölda myndbanda með íslensku tónlistarfólki.
Skoðið úrvalið á Tónlist.is

Snara.is er án efa þægilegasta leiðin til að nota íslenska orðabók sem býður þar að auki upp á þýðingu orða yfir á erlend tungumál (enska, danska, franska, spænska) og öfugt. Vefsíðan nýtist einnig til þess að leita í Íslendingasögum og verkum eftir Halldór Laxness. Vefurinn er því tilvalinn fyrir bæði fólk sem er í námi eða almenna notendur. Þar að auki geta sælkerar glatt sig því hægt er að leita að mataruppskriftum á einfaldan máta. Kynnið ykkur málin betur á Snara.is
Nýr iMac með stærri skjá, betri grafík og nýrri hönnun.

iMac inniheldur bjartan 21,5" eða 27" LED baklýstan breiðtjaldsskjá í hlutföllunum 16:9 og því tilvalinn fyrir háskerpumyndbönd.
Upplausnin er ekki af verri endanum því upplausnin á 21,5" er 1920x1080 dílar sem er 17 prósent meira en forveri sinn (20"). 27" iMac hefur 2560x1440 díla upplausn sem er 78 prósent aukning frá 21,5".
Þar að auki bjóða nýju skjáirnir upp á víðara sjónarhorn en áður með s.k. IPS-tækni, en sú tækni gefur notandanum bjarta og góða liti, frá nánast öllum sjónarhornum (178°).

Allar gerðir eru með 3,06GHz Intel Core 2 Duo örgjörva og stækkanlegar í allt að 3,33GHz.
Hægt er að fá enn meiri kraft í 27" iMac með nýju i5 og i7 örgjörvunum frá Intel. Þeir bera fjóra kjarna sem eru allt að 2x hraðvirkari en Core 2 Duo.
Með nýju gerðinni af iMac fylgir þráðlaust íslenskt lyklaborð og ný byltingarkennd mús frá Apple: „Magic Mouse“.
Magic Mouse hefur einn músarhnapp með fjölsnertiskynjara sem skynjar hvar fingurnir eru staðsettir. Þannig er hægt að framkvæma ýmsar aðgerðir eins og hægrismella, fara fram og til baka þegar vafrað er á netinu eða myndir skoðaðar í iPhoto og ýmislegt fleira.

Til að fá nánari upplýsingar og verð er best að skoða verðlista okkar, eða smella hér. Einnig er hægt að leggja inn pöntun á netinu með því að smella hér. Gert er ráð fyrir að fyrsta sending berist okkur upp úr miðjum nóvember.

Ný MacBook með bjartari skjá, betri rafhlöðu og nýrri hönnun.
Sérfræðingum Apple hefur tekist að koma fyrir mun stærri og endingarbetri rafhlöðu en í fyrri gerð án þess að gera tölvuna stærri og þyngri. Rafhlaðan endist í allt að 7 klst úr fullri hleðslu sem er einkar hentugt fyrir námsmenn og fólk á ferðinni.
Nýja rafhlaðan, sem er úr lithium-polýmer efni, gefur þar að auki allt að 1000 endurhleðslur (þrisvar sinnum meira en í hefðbundnum fartölvum) sem er um það bil 5 ára endingartími.

Nýja MacBook er með innbyggða LED-baklýsingu sem þýðir bjartari skjár, skarpari litir og betri orkunýting.
Þrátt fyrir að vera einungis 2,74 sm. þunn er skelin á MacBook orðin enn sterkari og endingarbetri en áður.

Apple hefur skipt út snertifletinum fyrir nýjan og stærri. Þar að auki er snertiflöturinn með fjölsnertiskynjurum og þakinn örþunnu gleri til að koma í veg fyrir slit.
Fjölsnertitækni gerir þér kleift að framkvæma ýmsar aðgerðir eins og að hægrismella, fara fram og til baka og stækka þegar vafrað er á netinu eða myndir skoðaðar í iPhoto.
Til að fá nánari upplýsingar og verð er best að skoða verðlista okkar, eða smella hér. Einnig er hægt að leggja inn pöntun á netinu með því að smella hér. Gert er ráð fyrir að fyrsta sending berist okkur upp úr miðjum nóvember.

Í dag var Mac mini uppfærð með nýjum örgjörva, auka vinnsluminni og nýjum uppfærslumöguleikum.
Nýr Mac mini án geisladrifs var einnig kynntur til sögunnar sem inniheldur tvo 500GB harða diska, eða 1TB samtals. Með honum fylgir Mac OS X Snow Leopard.
Nánari upplýsingar um verð og tæknileg atriði er hægt að skoða hér.


Fimmta kynslóðin af iPod nano er kominn með myndavél, hljóðnema og hátalara sem gerir þér kleift að taka upp vídeó hvar sem er. Þú getur horft á það á iPod nano spilaranum og fært beint inn á YouTube með tölvunni. Nýi iPod nano verður fáanlegur í tveimur gerðum - 8GB á 39.990 kr. og 16GB á 44.990 kr. - jafn nettur og áður, með stærri 2,2" skjá og glansandi álskel sem fæst í sjö litum hérlendis.
Nýi spilarinn er væntanlegur á næstunni. Fylgstu með á fréttavef okkar!

Í dag kynnti fyrirtækið iTunes 9, sem er nýjasta útgáfan af vinsælasta hugbúnaði heims sem gerir þér kleift að kaupa, halda utan um og spila tónlist og hreyfimyndir. iTunes 9 inniheldur nýja eiginleika eins og Home Sharing, Genius Mixes, iTunes LP og endurhannaða vefverslun ásamt endurbættri samræmingu (sync) við jaðartæki á borð við iPod og iPhone. Viðmótið er þar að auki endurhannað og mun skýrara og þægilegra en eldri útgáfur.
Sæktu iTunes 9 fyrir Mac á innlendum þjóni með því að smella hér .

Nýi iPod touch, frá aðeins 52.990 kr., er ekki bara frábær iPod-spilari heldur líka leikja- og lófatölva í einu tæki. iPod touch er með byltingarkenndan snertiskjá frá Apple, sem nemur margar snertingar í einu, skarpan 3,5-tommu breiðtjaldsskjá úr gleri, þráðlaust netkort (Wi-Fi), Bluetooth, innbyggðan hröðunarmæli og hátalara í ótrúlega þunnri málmskel sem fer vel í vasa. iPod touch verður fáanlegur í þremur gerðum; 8 GB á 52.990 kr, 32GB á 79.990 kr. og 64GB á 104.990 kr.
Nýi iPod touch er væntanlegur. Nánar um afhendingartíma á fréttavef okkar.

iPod shuffle, minnsti tónlistarspilari heims (og fyrsti sem talar við þig), fæst núna á aðeins 14.990 kr. og verður fáanlegur í fimm fallegum litum. iPod shuffle er stjórnað með fjarstýringu sem er staðsett á heyrnartólunum og því mun þægilegra að skipta um tónlist og hækka og lækka hljóðstyrkinn.
Nýja gerðin af iPod shuffle verður fáanleg í tveimur útgáfum; 2GB á 14.990 kr. og 4GB á 19.990 kr.
Uppfært (kl. 13:45) Uppselt! Þeir sem pöntuðu eintak (single-license) fyrir 4. september eiga frátekið eintak í versluninni. Ath. Family Pack kemur bráðlega.
Snow Leopard er nýlentur í verslun okkar, en fyrsta sending innihélt einstaklingsútgáfuna.
Við fáum svo fjölskyldupakkann bráðlega og geta viðskiptavinir lagt inn pöntun á verslun@epli.is (muna að hafa kennitölu+símanúmer með í skeytinu) og við höfum samband um leið og pakkinn lendir.
Verð á Snow Leopard er 5.490 kr. fyrir eitt leyfi, og 9.490 kr. fyrir fjölskyldupakka (allt að 5 vélar innan heimilis).

Snow Leopard tekur við af Leopard stýrikerfinu sem þótti byltingarkennt á sínum tíma með nýjum eiginleikum eins og Time Machine. Í dag hefur stýrikerfið verið endurbætt gríðarlega og er stöðugra, sneggri og öflugara en áður.
Mac OS X Snow Leopard inniheldur hundruði endurbætur sem gera Makkann þinn sneggri og áreiðanlegri en áður. Innsetning er allt að 50% hraðvirkari en í Mac OS X Leopard; að vekja tölvuna úr svefni er allt að 2x sneggra; slökkva á tölvunni er allt að 80% sneggra og upphaflegt Time Machine öryggisafrit á Time Capsule tekur allt að 80% styttri tíma en í Leopard.
Nú er Exposé innbyggt í Dock sem gefur þér hraða og greiða leið að sjá alla opna glugga í viðkomandi forriti.
Finder hefur verið endurskrifaður frá grunni til að geta nýtt sér nýja tækni sem Snow Leopard hefur upp á að bjóða. Útlitið er óbreytt, en það fyrsta sem þú munt taka eftir er að Finder er mun viðbragðssneggri en í Leopard.
Snow Leopard inniheldur þar að auki stuðning fyrir Microsoft Exchange Server 2007 í Mail, iCal og Address Book!
Nýja stýrikerfið er væntanlegt í verslun okkar. Hægt er að leggja inn pöntun á stýrikerfinu með því að hafa samband við verslun í verslun@epli.is og láta kennitölu ásamt símanúmeri fylgja með í skeytinu.
Fylgist með á fréttasíðunni!

Í dag kynnti Apple uppfærslur á öllum borðtölvum sínum, en um er að ræða innihaldsbreytingar í öllum línum.
Mac Pro hefur fengið nýjan Intel Xeon örgjörva, nefndur Nehalem og fæst í ýmsum útgáfum. Tölvan inniheldur öflugara skjákort sem hentar vel í þyngri grafíkvinnslu, nýjar PCI Express 2.0 raufar og hraðvirkara vinnsluminni (1066MHz DDR3).
Mac Pro verður til í tveimur útfærslum og að sjálfsögðu hægt að uppfæra alla íhluti vélarinnar eftir eigin þörfum eins og vinnsluminni, örgjörva, skjákort og fleira.
Skoðið tæknilegar upplýsingar um vélina á verðlista okkar.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á iMac línunni, en nú er miðgerðin komin með 24" skjá en hún var 20" áður. Nýtt og kraftmeira skjákort er komið í nýju vélarnar sem henta einkum vel í leiki og vídeóvinnslu.
Einnig hefur iMac nýtt og hraðvirkara vinnsluminni (1066MHz DDR3) og er uppfæranleg í allt að 8GB sem er tvöföldun frá fyrri gerð. Þar að auki er harðdiskplássið orðið stærra og er 320GB diskur í 20" iMac og 640GB í stærri gerðunum.
iMac verður fáanleg í fjórum gerðum; einni 20" og þremur 24".
Nánari tæknilegar upplýsingar ásamt verð er hægt að nálgast á verðlista.

Mac mini er líklegast sú vél sem flestir hafa beðið eftir, en hún hefur fengið mun betra innihald sem ræður betur við leiki og háskerpu vídeó.
Nýja skjákortið sem vélin hefur er frá NVIDIA og ber heitið GeForce 9400 M með allt að 256MB minni. Vinnsluminni tölvunnar hefur verið tvöfaldað í stærri gerðinni (2GB) og ráða þær nú við allt að 4GB sem er þar að auki hraðvirkara eins og í fyrrnefndu vélum hér að ofan (1066MHz DDR3).
Mac mini hefur allt að 320GB harðan disk ásamt tvö skjátengi sem býður notendum að tengja tvo skjái við tölvuna. Einnig er hægt að tengja 30" Cinema Display með breytistykki (semsagt allt að 2560 x 1600 px upplausn).
Verð og nánari upplýsingar um Mac mini fæst á verðlista.
Verslun okkar hefur verið flutt úr Kringlunni á Laugaveg 182. Vegna flutnings verður lokað í dag.
Nýjan afgreiðslutíma er hægt að sjá hér.
fimmtudaginn 22. janúar 2009:
Sýningareintök af nýju MacBook og MacBook Pro eru nýlent í verslun okkar Laugavegi 182. Þar að auki er að finna nýjasta skjáinn frá Apple; 24" LED Cinema Display.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að næla sér í eintak af þessum ómótstæðilegum fartölvum frá Apple geta kíkt við eða einfaldlega haft samband og við látum viðkomandi vita þegar varan er komin.
Einnig er vert að nefna að iWork '09 Family Pack er lentur, en einstaklingsútgáfan er væntanleg!
Verslun okkar hefur verið flutt úr Kringlunni á Laugaveg 182. Vegna flutnings verður lokað í dag.
Nýjan afgreiðslutíma er hægt að sjá hér.
iPod nano 8GB og Airport Express er komið í verslun okkar Kringlunni.
iPod nano er fáanlegur í grænum og svörtum lit ásamt silfur.
Athugið að um er að ræða takmarkað magn!
Einkaþjálfarinn er nýjung á íslenskum markaði, en það er persónuleg kennsla fyrir Mac-notendur.
Um er að ræða kennslu á ýmis atriði sem koma nálægt Mac OS X umhverfinu, hinum ýmsu fylgiforritum á borð við iLife og fleira. Í boði er 30 mín eða 60 mín kennsla í senn og hægt að panta hana á epli.is/einkathjalfarinn
Í dag, 14. október, kynnti Apple til sögunnar endurhannaða MacBook og MacBook Pro sem byggir á sömu uppbyggingu og MacBook Air. Tölvurnar eru þar af leiðandi þægilegri, sterkari, einfaldari og skelin úr áli.
Tölvurnar bera nýjan háglansskjá með svörtum ramma eins og þekkist á iMac og LED-baklýsingu. Þetta gerir skjáinn mun bjartari og endingarbetri.

Byltingarkennd grafíktækni frá NVIDIA var einnig kynnt. Um er að ræða samnýtt skjákort með heitið 9400M sem gefur allt að 500% betri afköst en eldri tækni. Þessi tækni verður flutt í allar fartölvurnar, þ.e. MacBook, MacBook Air og MacBook Pro. Hin síðastnefnda fær þar að auki NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt kort með allt að 512MB skjáminni, en tölvan skiptir þá sjálfkrafa yfir í öflugara skjákortið þegar þess þarf. Þetta sparar líftíma rafhlöðu til muna, eða allt að 1 klst.
Vert er að nefna nýtt tengi í tölvunum, „Mini DisplayPort“, sem er á öllum nýju gerðunum af MacBook, MacBook Pro og MacBook Air. Það snjalla við það er að það er fyrirferðarminna og einfaldara að tengja. Það styður DVI, Dual DVI og VGA.
Nýr fjölsnertiflötur úr gleri var einnig kynntur og hefur hinn hefðbundni músarhnappur verið fjarlægður. Nýjum flýtiskipinum hefur verið bætt við og má nefna að hægt er að skipta á milli forrita með því að nota fjóra fingur.
Nýju MacBook Pro eru til í eftirfarandi útfærslum;
Nýju MacBook eru til í eftirfarandi útfærslum;
Afhendingartími vélanna hérlendis verður tilkynntur síðar á fréttavef epli.is.
Nýr skjár frá Apple hefur verið kynntur en hann ber nafnið „24" LED Cinema Display“.
Skjárinn er með innbyggða stereó hátalara, iSight vefmyndavél og hljóðnema. Þar að auki hefur hann nýtt skjátengi, „Mini DisplayPort“, ásamt MagSafe straumbreyti fyrir Apple-fartölvur og USB tengi.
Skjárinn er með þrjú USB tengi á bakhlið til að fjölga tengjum á fartölvunni.
Afhendingartími og verð verður tilkynnt síðar á epli.is.
Höfundarréttur © 2009 Apple, Inc. og Apple IMC á Íslandi. Allur réttur áskilinn.