AirPods Pro 2
Þráðlaus. Þægileg.
Airpods Pro 2. kynslóð með USB-C gera vinsælustu heyrnartól heims enn betri með einu útbreiddasta tengi heims. Airpods Pro (2. kynslóð) eru þráðlaus heyrnartól með tvöfalt betri virkri hljóðeinangrun en fyrri kynslóð og bjóða þau nú upp á sveigjanlega hljóðeinangrun (Adaptive Audio) og persónulegum hljóðstyrk (Personalized Audio) sem aðlagar sig að umhverfishljóði í rauntíma. Þannig geta þau stillt hljóðstyrk, gegnsæi hljóðs og virka hljóðeinangrun eftir því sem ómar í kringum þig og læra af þér hvaða hljóðstyrkur hentar best.
AirPods Pro 2
Þægilegt og útbreidd tengi
Airpods Pro eru nú með USB-C tengi og deilir þá tengjum með iPhone 15 símum, Mac tölvum og iPad spjaldtölvum. Þannig er hægt að nota sama hleðslutækið fyrir öll þau tæki. Það er einnig hægt að hlaða beint úr iPhone 15 með USB-C snúru. Airpods Pro styðja einnig snertilausa Magsafe-hleðslu sem virkar líka með Apple Watch hleðslutækinu. Airpods Pro 2. kynslóð eru með lykkjugat til að bæta við festingu, snertistikur á heyrnartólum til að breyta hljóðstyrk og háværari hátalara til að hjálpa þér að staðsetja Airpods sem eru á kafi í sófanum þínum.