Stutt lýsing
40mm Apple Watch Series 4
Fjórða kynslóð af Watch frá Apple - vinsælasta úri í heimi.
Series 4 hefur verið endurhannað frá grunni til að færa þér áður óþekkta eiginleika.
Skjárinn er nú stærri og úrið ögn þynnra en áður.
Það hefur nýjan geysiöflugan S4 tveggja-kjarna 64-bita örgjörva.
Með innbyggðu GPS mælir það hraða, skref, vegalengd og staðsetningu af mikilli nákvæmni
og jafnvel hvort notandinn hafi dottið.
Apple Watch ýtir við þér með léttri snertingu - minnir þig á að sitja minna, standa upp og hreyfa þig reglulega.
Hinn nákvæmi hjartsláttarmælir getur varað þig við frávikum og mælir púlsinn reglulega.
Apple Watch er líka framlenging á upplýsingum úr iPhone símanum þínum:
- þú svarar símtölum eða hringir og hátalarinn í úrinu býr nú yfir enn meiri styrk
- þú færð skilaboð, tölvupóst og tilkynningar að eigin vali
Litur: Silfurlitað hús úr áli, með silfurlitaðri ól - fyrir úlnlið með ummál frá 130-190mm