Helstu eiginleikar
• Apple M2 Pro flaga
• 10-Core CPU
• 16-Core GPU
• 16GB vinnsluminni
• 512GB SSD
• 16-Core Neural Engine
• 14,2" Liquid Retina XDR skjár
• 1080p FaceTime Camera
• 3x Thunderbolt/USB4 tengi
• Magic lyklaborð með Touch ID
• Force Touch trackpad
• 67W USB-C MagSafe 3 hleðsla
Z17G
MacBook Pro 14" M2
429.990 kr
Litur
-
Dökkgrár
-
Silfur
Veldu þína tegund
Hvar fæst varan?
-
Laugavegur
-
Smáralind
-
Vefverslun
Hraðari MacBook Pro með M2 Pro og M2 Max
MacBook Pro M2
Apple M2 örgjörvarnir eru sex sinnum hraðari en Intel örgjörvarnir sem voru í MacBook Pro áður
Apple hefur uppfært MacBook Pro 14 og MacBook Pro 16 fartölvurnar með M2 örgjörvum: M2 Pro og M2 Max. M2 örgjörvarnir eru sex sinnum hraðari en Intel örgjörvarnir sem Apple notaði í fyrri útgáfur MacBook Pro. MacBook Pro býður nú upp á allt að 96 GB af minni og 8 TB af plássi. Þetta eru fartölvur sem standast snúning við borðtölvur í afköstum.

Litir og stærðir
Tvær stærðir, tveir litir
MacBook Pro kemur í tveimur stærðum: 14” og 16”. MacBook Pro 14 hentar vel þeim sem eru mikið á ferðinni eða þurfa að ferðast vegna vinnu. Skjárinn er aðeins minni, eða 14 tommur, og rafhlaðan endist aðeins minna eða 18 klukkutíma við bestu mögulegu aðstæður. Þó tölvan sé aðeins minni, getur hún fengið sama afl og stærri tölvan: M2 Max með 96 GB minni og 8 TB pláss. MacBook Pro 16 er aðeins stærri, þyngri og endist rafhlaðan lengur. Hún hentar þeim sem vilja fá það allra mesta úr sinni tölvu. Tölvurnar koma í silfur eða dökkgráum litum og hægt er að skoða þær í verslunum Epli í Smáralind og á Laugavegi.


Rafhlaðan
Allt að 22 klukkutíma rafhlöðuending
M2 er næsta kynslóð örgjörva Apple sem byggir á nýrri 5 nanómetra framleiðslutækni sem skilar auknum afköstum og betri nýtingu rafmagns. Nú eru fjórir orkusparandi örgjörvaeiningar í stað tveggja og nær rafhlaðan því allt að 22 klukkutíma endingu við bestu aðstæður án þess að fórna afköstum. MacBook Pro dregur aldrei úr afköstum sínum, ekki einu sinni þegar hún er tekin úr sambandi nema þegar þú viljandi setur rafhlöðuna á Low Power stillinguna til að teygja úr endingunni.


Tengi
Í mun betra bandi
MacBook Pro er í mun betra sambandi en áður með uppfærðum tengjum og tækni. Fartölvurnar geta nú tengst 8K skjám á 60Hz tíðni og 4K skjám á 240Hz tíðni með HDMI 2.1 tenginu. Þráðlaust net er uppfært í WiFi 6e sem bætir við sig 6Ghz sem er tvöfalt hraðari en fyrri kynslóð af WiFi. Vefmyndavélin er skarpari og bjartari jafnvel þó linsan sé sú sama, en það er ISP-kubbi á M2 örgjörvanum að þakka.


Örgjörvi og skjákjarni
Afköst sem spara þér sporin
M2 kemur í tveimur útgáfum: M2 Pro og M2 Max. M2 Pro er með 10 eða 12 kjarna reiknikjarna sem eru 20% hraðari en M1 Pro. Minnishraði er 200 GB/sekúndu, sem er tvöfalt á við M2 örgjörvann sem er að finna í MacBook Air 2022. M2 Max er með 16 eða 32 GB af vinnsluminni og allt að 19 skjákjarna fyrir grafíska vinnslu sem auka afköst um 30% milli kynslóða. Gervigreindarörgjörvar M2 Pro (e. neural engine) er 40% hraðari á milli kynslóða sem flýtir fyrir myndbandagreiningu og myndvinnslu. Margmiðlunareining M2 Pro (e. media engine) sparar þér sporin við mynd- og myndbandavinnslu og forritun í Xcode. Miðað við síðustu Intel-fartölvu frá Apple þá er myndbandsvinnsla í Motion 80% hraðari, myndvinnsla í Adobe Photoshop er 80% hraðari og er Xcode 2,5 sinnum hraðari.

