Leiðbeiningar fyrir Apple ID

Leiðbeiningar fyrir Apple ID

Stofna Apple ID aðgang fyrir barn

Í stað þess að deila aðgangi með barninu þínu, sem getur veitt því aðgang að persónuupplýsingum þínum, eins og myndum, skilaboðum, vafrasögu og fleira, skaltu stofna sérstakan Apple ID aðgang fyrir það. Þannig getur þú á auðveldan máta sett upp aldurstengda foreldrastjónun (e. parental controls), og barnið getur notað Family Sharing, Messages, App Store og aðrar Apple þjónustur. 

Með Family Sharing getur þú til dæmis verið með eina áskrift að iCloud+ fyrir alla fjölskyldumeðlimi, hver og einn meðlimur heldur sínu persónulega svæði á iCloud, en þið deilið heildar geymsluplássinu.

Hvernig á að stofna Apple ID fyrir barnið þitt

Börn undir 13 ára aldri geta ekki stofnað sinn eigin Apple ID aðgang af sjálfsdáðum. En ef þú er stjórnandi eða forráðamaður í Family Sharing, getur þú stofnað Apple ID aðgang fyrir barnið þitt.

  • Til að sýna fram á að þú sért fullorðinn einstaklingur munt þú þurfa greiðslukort. Á iPhone getur þú einnig notað ökuskírteini eða persónuskilríki í Wallet þar sem það er í boði. ATH! íslensk stafræn ökuskírteini eru ekki tekin gild utan Íslands og þar af leiðandi gilda þau ekki hjá Apple. 

    Á iOS 16 eða iPadOS 16 og nýrri útgáfum

    1. Opnaðu Settings appið > Family fyrir neðan nafnið þitt efst.

    2. Ýttu á No alt supplied for Image hnappinn til að bæta við meðlimi.

      The Add Member button is in the upper right corner of your screen.
    3. Veldu „Create Child Account“ og ýttu á Continue.

      Create Child Account is just below Invite Others.
    4. Fylltu inn fullt nafn og fæðingardag barnsins. Passaðu að slá inn réttan fæðingardag, þessu er ekki hægt að breyta síðar.

    5. Fylgdu skrefunum á skjánum til að klára uppsetningu aðgangsins. Þú getur notað núverandi tölvupóstfang barnsins ef það á slíkt, stofnað @icloud.com tölvupóstfang eða notað Game Center gælunafn þess.

    Á iOS 15 eða iPadOS 15 og eldri útgáfum

    1. Opnaðu Settings appið.

    2. Opnaðu nafnið þitt efst og svo Family Sharing.

    3. Ýttu á „Add Member“.

    4. Veldu á „Create an Account for a Child“ og ýttu á Continue.

    5. Fylltu inn fullt nafn og fæðingardag barnsins. Passaðu að slá inn réttan fæðingardag, þessu er ekki hægt að breyta síðar.

    6. Fylgdu skrefunum á skjánum til að klára uppsetningu aðgangsins. Þú getur notað núverandi tölvupóstfang barnsins ef það á slíkt eða notað Game Center gælunafn þess.

     

  • Til að sýna fram á að þú sért fullorðinn einstaklingur munt þú þurfa greiðslukort.

    Á macOS Ventura eða nýrri stýrikerfum

    1. Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri  > System Settings og ýttu á Family.

    2. Smelltu á „Add Member“.

      The Add Member button is just below the list of people in your family group.
    3. Smelltu á „Create Child Account“.

      The Create Child Account button is on the left, alongside the Not Now and Invite People buttons.
    4. Fylgdu skrefunum á skjánum til að klára uppsetningu aðgangsins. Passaðu að slá inn réttan fæðingardag – ekki er hægt að leiðrétta hann síðar. Þú getur notað tölvupóstfang barnsins með Apple ID aðgangnum eða Game Center gælunafn.

    Á macOS Monterey eða eldri stýrikerfum

    1. Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri  > System Preferences og smelltu á „Family Sharing“.

    2. Smelltu á No alt supplied for Image hnappinn til að bæta við meðlimi.

    3. Smelltu á „Create Child Account“.

    4. Fylgdu skrefunum á skjánum til að klára uppsetningu aðgangsins. Þú getur notað tölvupóstfang barnsins eða Game Center gælunafn þess fyrir aðganginn. Passaðu upp á að slá inn réttan fæðingardag – ekki er hægt að leiðrétta hann síðar.

Endursetja lykilorð á Apple ID aðgangi barns

Ef þú ert stjórnandi eða forráðamaður í Family Sharing, getur þú aðstoðað barnið við að endursetja lykilorðið á Apple ID aðgangi þess. Þú þarft iPhone með iOS 16 eða nýrra stýrikerfi, eða iPad með iPadOS 16 eða nýrra stýrikerfi, og vera með kveikt á tvíþættri auðkenningu á þínum Apple ID aðgangi.

Finndu út hvernig á að endursetja lykilorð á Apple ID aðgangi barns

Um stillingar og eiginleika fyrir börn undir 13 ára aldri

Sumar Apple ID stillingar og eiginleikar virka öðruvísi fyrir börn undir 13 ára aldri. Til dæmis getur barn undir 13 ára aldri ekki stofnað Apple ID aðgang án leyfis og aðstoðar frá foreldri eða forráðamanni. Lágmarksaldur til að stofna Apple ID aðgang er mismunandi milli landa. Á Íslandi er það 13 ár. Í Austurríki, Búlgaríu, meginlandi Kína, Kýpur, Ísrael, Ítalíu, Litháen, Suður Kóreu og Spáni er það 14 ár. Í Tékklandi, Frakklandi, Grikklandi, Perú og Slóveníu er það 15 ár. Í Brasilíu, Króatíu, Þýskalandi, Ungverjalandi, Írlandi, Kósóvó, Liechtenstein, Lúxemborg, Malasíu, Hollandi, Filipseyjum, Póllandi, Rúmeníu, Singapúr og Slóvakíu er það 16 ár. Í öllum öðrum löndum er það 13 ár, líkt og á Íslandi.

Fyrirmynd greinar sótt frá Apple 22. janúar 2024

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: