Helstu eiginleikar
• Apple M2 flaga
• 8-Core CPU
• Allt að 10-Core GPU
• Allt að 16GB vinnsluminni
• Allt að 512GB SSD
• 16-Core Neural Engine
• 13,6" Liquid Retina skjár
• 1080p FaceTime Camera
• 2x Thunderbolt/USB4 tengi
• Magic lyklaborð með Touch ID
• Force Touch trackpad
• 30W eða 35W USB-C hleðsla
Z15S
MacBook Air 13" M2
Nýtt útlit, stærri skjár, þynnri, hraðari og nú í dökkum lit. Nýja MacBook Air fartölvan er sveigjanlegur kostur fyrir fólk á ferðinni. Apple M2 örgjörvinn er afkastamikill, hljóðlátur og styður allt að 24 GB af vinnsluminni fyrir kröfuharða.
234.990 kr
Litur
-
Dökkgrár
-
Svarblár
-
Ljósgull
-
Silfur
Veldu þína tegund
Hvar fæst varan?
-
Laugavegur
-
Smáralind
-
Vefverslun
Tengdar vörur

Apple M2 örgjörvinn
Apple M2 örgjörvinn kraftmikill en hljóðlaus
M2 er önnur kynslóð tölvuörgjörva Apple, en þau hafa framleitt örgjörva í snjallsíma um árabil fyrir iPhone. Á örgjörvanum eru margar einingar: fjórir kjarnar sem spara orku, fjórir kjarnar sem afkasta miklu, 16 gervigreindarkjarnar og margmiðlunarvél sem auðveldar myndvinnslu. M2 örgjörvinn styður einnig ProRes-hröðun með sérhæfðri einingu, þannig hún er fáranlega fljót að spýta út ProRes myndböndum og getur klippt myndbönd í 8K upplausn.


Nýtt útlit, stærri skjár, þynnri, hraðari og nú í dökkum lit.
MacBook Air
MacBook Air er vinsælasta tölvan frá Apple, ef ekki í heiminum, og hefur Apple endurhannað hana frá grunni til að nýta sér aflið frá M2 örgjörvanum sem Apple sjálft framleiðir. Fartölvan kemur í nýrri skel sem er þynnri og mýkri með rúnuðum hornum í stíl við MacBook Pro. Segulmagnaða Magsafe-hleðslusnúran er líka loksins komin aftur, og nú er hægt að hlaða fartölvur í kringum börn, gæludýr og klunna. Apple M2 örgjörvinn gerir það að verkum að tölvan er öflug en á sama tíma endingagóð og endist rafhlaðan í allt að 18 klukkustundir.

Macsafe
Magsafe og tveggja raufa hleðsla
Magsafe er komið aftur, og nú með þynnri haus fyrir þynnri tölvu. Hleðslusnúran fær líka uppfærslu og er nú vafinn og samlita tölvunum. Það er líka hægt að fá 35W hleðslutæki með tveimur USB-C raufum svo hægt sé að hlaða tvö tæki á sama tíma. Einnig er hægt að uppfæra í 67W hleðslutæki til að fá hraðhleðslu sem gefur þér 50% á hálftíma.

Apple M2 örgjörvinn
Allt frá léttri ritvinnslu og upp í margmiðlun
MacBook Air kemur vel útbúin í grunninn fyrir langflest en hægt er að sníða hana að þungri vinnslu. M2 örgjörvinn styður allt að 24GB samnýtanlegt vinnsluminni fyrir þau sem elska að opna flipa, semja tónlist, keyra sýndarkerfi eða reikna í stórum töflureikniskjölum. Einnig er hægt að fjölga skjákjörnum frá 8 í 10 til að fá meira afl fyrir myndvinnslu. Þau sem vilja fullt af geymsluplássi geta uppfært í 1 eða 2TB með sérpöntun hjá Epli. Allur þessi sveigjanleiki í 1,24 kg. pakka sem fer með þér hvert sem er.

