Leiðbeiningar fyrir AirPods

Leiðbeiningar fyrir AirPods

Hvernig þrífa skal AirPods og EarPods

Lærðu hvernig á að þrífa AirPods og EarPods tækin þín.

AirPods og AirPods Pro

  • Ekki setja AirPods eða AirPods Pro undir rennandi vatn.
  • Notið mjúkan, þurran og hreinan klút.
  • Ef AirPods eða AirPods Pro tækin komast í snertingu við efni sem gæti skilið eftir sig bletti eða aðrar skemmdir - t.d. sápu, sjampó, hárnæringu, húðkrem, ilmvatn, leysiefni, þvottaefni, sýru eða mat með háu sýrustigi, skordýrafælu, sólarvörn, olíu eða hárlit
    • Strjúkið þau hrein með smávægilega rökum klút og þurrkið með mjúkum, þurrum og hreinum klút.
    • Leyfið þeim að þorna alveg áður en þau eru sett í hleðsluboxið.
    • Notið þau ekki fyrr en þau eru alveg þurr.
  • Passið vel upp á að enginn vökvi komist inn um opin á tækjunum.
  • Þrífið hljóðnema- og hátalaragrillið með þurrum bómullarpinna.
  • Notið alls ekki beitt verkfæri eða hrjúft efni til að þrífa AirPods eða AirPods Pro.

Hleðslubox fyrir AirPods og AirPods Pro

Þrífið hleðsluboxið með mjúkum, þurrum og hreinum klút. Hægt er að bleyta klútinn örlítið með ísóprópýl alkahóli ef þörf er á. Passaðu vel upp á að enginn vökvi komist í snertingu við hleðslutengin. Hér eru nokkrir punktar:

  • Fjarlægðu ló eða önnur óhreinindi úr lightning tenginu með hreinum, þurrum og mjúkum bursta.
  • Notið alls ekki beitt verkfæri eða hrjúft efni til að þrífa hleðsluboxið.

Ekki setja neitt inn í hleðslutengið til að koma í veg fyrir að skemma tenglana þar inni.

Eyrnatappar á AirPods Pro

  • Ef vökvi hefur safnast í eyrnatappa skal banka Airpod tækinu varlega við mjúkan, þurran og hreinan klút þannig að opið á eyrnatappanum snúi niður til að losa vökvann.
  • Takið tappana af AirPods tækjunum og skolið þá með rennandi vatni. Ekki nota sápu eða önnur hreinsiefni.
  • Notið mjúkan, þurran og hreinan klút til að þurrka tappana. Gangið úr skukka um að tapparnir séu alveg þurrir áður en þeir eru settir aftur á tækin.
  • Smellið töppunum aftur á tækin. Tapparnir eru sporöskjulaga og þarf því að passa að þeir snú rétt áður en þeir eru settir á tækin.

AirPods og vatnsþol

AirPods Pro eru vatnsþolin, en ekki vatnsheld. Hleðsluboxið fyrir AirPods Pro er hvorki vatnsþolið né vatnshelt, það þarf því að passa vel upp á að enginn raki komist inn í tækið. Ef boxið kemst í snertingu við raka skal þurrka það með því að leggja það á hvolf með lokið opið.

AirPods (1. og 2. kynslóð) og hleðsluboxin fyrir þau eru hvorki vatnsþolin né vatnsheld, það þarf því að passa vel upp á að enginn raki komist inn í tækin. Ef AirPods tækin komast í snertingu við raka, þar með talið svita frá líkamsrækt, skal þurrka af þeim með þurrum og hreinum örtrefjaklút. Til að þurrka hleðsluboxið skal leggja það á hvolf með lokið opið.

Ef AirPod tæki skemmist eftir að það kemst í snertingu við raka getur þú komið með tækið til okkar til að panta útskipti.

EarPods

  • Ekki setja EarPods undir rennandi vatn.
  • Notaðu mjúkan, þurran og hreinan klút.
  • Passaðu upp á að enginn raki komist inn í tækið.
  • Þrífið hljóðnema- og hátalaragrillið varlega með þurrum bómullarpinna. Fjarlægðu ló eða önnur óhreinindi úr grillunum með hreinum, þurrum og mjúkum bursta.
  • Notið alls ekki beitt verkfæri eða hrjúft efni til að þrífa EarPods.

Skref til að koma í veg fyrir óþægindi í húð

Skref til að koma í veg fyrir óþægindi í húð, sérstaklega ef þú ert með ofnæmi eða viðkvæma húð:

  • Notaðu AirPods Pro þannig þau passi rétt fyrir þig – sjá Choose your AirPods Pro ear tips and use the Ear Tip Fit Test.
  • Eftir líkamsrækt með AirPods Pro eða eftir að tækið hefur komist í snertingu við vökva eins og svita, sópu, sjampó, farða, sólarvörn eða húðkrem sem geta valdið óþægindum í húð skaltu þrífa og þurrka tækið. Það að halda EarPods og AirPods – sem og húðinni þinni – hreinum og þurrum mun hámarka þægindi og koma í veg fyrir langtíma skemmdir á tækinu.
  • Ef þú ert með þekkt ofnæmi eða viðkvæmni gagnvart ákveðnum efnum getur þú skoðað hvað AirPods og EarPods eru framleidd úr og séð hvaða efni eru á yfirborðinu og geta komist í snertingu við húðina.

Útgáfudagur: 8. maí 2020

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: