Auktu upplifunina með Apple Watch og AirPods Pro 3. Fáðu rauntímamælingar og lifandi framvindu á hreyfingarhringjunum sem hvetja þig á meðan þú æfir. Þrír skynjarar. Ein snjöll hjartsláttarmæling.
AirPods Pro 3 og Apple Watch mynda saman öflugt mælikerfi sem notar þrjá hjartsláttarskynjara — einn í Apple Watch og einn í hvoru heyrnartóli. Kerfið ber stöðugt saman gögn frá öllum skynjurunum og velur sjálfkrafa nákvæmasta merkið hverju sinni. Þannig færðu stöðugri og áreiðanlegri mælingar í hlaupum, hjólreiðum og styrktaræfingum.
Snjöll skipti milli hjarsláttarmæla
Snjallt kerfi sem aðlagar sig æfingunni
Við æfingar þar sem úlnliðurinn hreyfist mikið — eins og í bekkpressu eða ketilbjöllusveiflum — getur kerfið sjálfkrafa treyst meira á gögnin úr AirPods Pro 3. Þegar úlnliðurinn er stöðugri getur Apple Watch tekið við sem aðalgagnagjafi. Allt gerist sjálfkrafa til að tryggja bestu mögulegu mælingu.
AirPods Pro 3
Fylgist með púlsinum á æfingu
Púlsmælir sýnir púls og brennslu í rauntíma á meðan þú æfir. Með hjálp LED-ljósa sem blikka ósýnilegu ljósi 256 sinnum á sekúndu – og samruna skynjara úr hröðunarmælunum – gefa AirPods Pro 3 þér afar nákvæm gögn fyrir allt að 50 mismunandi æfingategundir í Fitness-appinu. Og þau sitja sem fastast í eyrunum, svo það er bara að gefa í!
Skiptu um lag, hækkaðu eða lækkaðu hljóðið og stjórnaðu æfingunni án þess að taka iPhone upp úr vasanum. Með Apple Watch og AirPods Pro 3 vinnur allt saman á einfaldan og snjallan hátt.
Apple Watch + AirPods Pro 3
Fullkomið með Apple Fitness+
Með Apple Fitness+ færðu hjartsláttargögnin beint inn í æfingarnar og getur fylgst með frammistöðunni í rauntíma á meðan AirPods Pro 3 sjá um hljóðupplifunina. Saman skapa tækin persónulegri, nákvæmari og skemmtilegri æfingaupplifun.
Apple Fitness +
Frí prufuáskrift
Opnaðu á iPhone eða iPad til að virkja prufuáskrift.