Helstu eiginleikar

• Apple A18 Pro flaga
• 6-Core CPU
• 5-Core GPU
• 8GB vinnsluminni
• 256GB SSD
• 16-Core Neural Engine
• 13" Liquid Retina skjár
• 1080p FaceTime Camera
• Magic lyklaborð
• Multi-Touch trackpad
• 2x USB-C (1x USB 3, 1x USB 2)

Z1TN

Nýtt
Verðlækkun

MacBook Neo

Verð

119.900 kr

Litur

  • Silfur
  • Sítrus
  • Indígóblár
  • Ljósbleikur

Veldu þína tegund

Hvar fæst varan?

  • Laugavegur

  • Smáralind

  • Vefverslun

Vörur

Þú gætir haft áhuga á

Færð þú tölvuna þína endurgreidda.

Tveir heppnir einstaklingar sem versla MacBook Neo, MacBook Air eða iPad hjá Epli
á tímabilinu 1. ágúst - 10. sept. eiga möguleika á að fá vöruna endurgreidda..

Skólagjafaleikur Epli.

Afköst

Drifkraftur fyrir allt
sem þú gerir.

Með A18 Pro flögunni geturðu keyrt uppáhaldsöppin þín, sinnt daglegum verkefnum á augabragði, verið skapandi og spilað hasarleiki. Svo sama hvað dagurinn ber í skauti sér, þá geturðu haldið í við allt sem veitir þér innblástur.

Performance Lifestyle Erk9efbsqgqe Large 2X

Svínvirkar fyrir dagleg verkefni.

A18 Pro-flagan gefur uppáhaldsöppunum þínum og gervigreind byr undir báða vængi. Og þú hefur afl og skilvirkni innan seilingar á augabragði.

Traustur förunautur.
MacBook Neo er tilbúin að fylgja þér hvert sem er, allt frá fyrirlestrum að morgni til vafurs seint að kvöldi.

Allt að
16 klst.
rafhlöðuending

Skjár, myndavél og hljóð

Veisla fyrir skilningarvitin.

Myndir og myndskeið fá ríkulega skerpu og skýr smáatriði. Texti verður afar skýr og auðlesinn. Og tveir hátalarar á hliðunum umlykja þig hljóði.

13" Liquid Retina-skjár

með stuðning fyrir 1 milljarð lita.

3,6 milljónir

pixla gefa ótrúlega upplausn

500

nita birta

1080p FaceTime HD-myndavélin tryggir raunveruleg myndgæði svo þú lítur alltaf frábærlega út.

MacBook Neo FaceTime camera

Tveir hljóðnemar með stefnuvirkri geislamyndun einangra og magna röddina þína um leið og þeir draga úr bakgrunnshávaða. Röddin þín verður skýr og greinileg.

Tveir hátalarar á hliðunum tryggja yfirgripsmikið hljóð. Og rýmishljóð (e. Spatial Audio) með stuðningi fyrir Dolby Atmos gefur þrívíddarhljóðupplifun fyrir tónlist, þætti og kvikmyndir.

MacBook Neo speaker

macOS

Fær stjórnandi.

macOS er öflugt og notendavænt stýrikerfi sem gerir Mac að því sem hann er. Ef þú átt nú þegar iPhone mun allt virka kunnuglega. Einföld yfirsýn. Ókeypis sjálfvirkar uppfærslur. Öpp sem keyra hnökralaust. Allt saman í Liquid Glass-hönnun sem sýnir allt sem þú gerir skýrt og greinilega.

Gerðu allt. Einfaldlega.

MacOS er einfalt og leiðandi, með skjótum aðgangi að forritum og skrám, góðu skipulagi á mörgum gluggum og skilvirkri stýringu með Multi-Touch trackpad.

Macos Multitasking Endframe Uj1jqlh9scye Large 2X

Innbyggð forrit frá Apple.

Vafraðu á netinu með Safari. Búðu til glæsilegar kynningar í Keynote. Hringdu í vini með FaceTime. MacBook Neo kemur með forritum sem eru tilbúin fyrir bæði vinnu og skemmtun í daglega lífinu.

Innbyggð forrit frá Apple.

Notaðu uppáhaldsforritin þín.

Allt frá Microsoft 365 Copilot til Zoom – forritin sem þú þekkir og elskar keyra hnökralaust á Mac. Sæktu bara uppáhaldsforritin þín úr App Store og finndu þúsundir annarra á meðan þú ert þar.

Macos Favorite Bne7pmly06eu Large 2X

Virkar eins og þú vilt.

Sérsníddu MacBook Neo með ljósum og dökkum ham, bættu við lituðum táknum og stækkaðu eða minnkaðu Dock eða tækjastikur til að fá allt eins og þú vilt hafa það.

Macos Customize F6yv65kj85iu Large 2X

Fljótlegt með Spotlight.

Finndu dótið þitt á augabragði á MacBook Neo og fáðu uppástungur úr forritum, skrám, aðgerðum, af internetinu og úr Universal Clipboard.

Macos Spotlight Dvyi22ugugwi Large 2X

Persónuvernd og öryggi

Öryggið framar öllu.

MacBook Neo er hönnuð frá grunni með sama háþróaða öryggi og er staðalbúnaður í öllum Mac-tölvum. Með sjálfvirkri dulkóðun gagna, ókeypis vírusvörn og reglulegum öryggisuppfærslum geturðu verið viss um að þú og gögnin þín séu örugg á netinu.

Læsingarhnappur eða Touch ID.

MacBook Neo gerðin með læsingarhnappi gerir það auðvelt að vekja og læsa Mac-tölvunni og að kveikja og slökkva á henni. MacBook Neo með Touch ID notar fingrafarið þitt til að aflæsa Mac-tölvunni, samþykkja greiðslur og skrá þig inn í öpp og á vefsíður.

Security Touchid E9ohsg1cylqq Large 2X

Varin ef hún týnist.

Find My appið hjálpar þér að finna MacBook Neo tölvuna þína og læsa henni eða fjarhreinsa hana. Og FileVault dulkóðar gögnin þín sjálfkrafa svo þau verða algerlega ólesanleg – og gögnin þín eru áfram örugg þótt þú týnir Mac-tölvunni eða henni sé stolið.

Security Findmy Ekn7sm0nrhsi Large 2X

Passar upp á öryggið.

MacBook Neo er með ókeypis, innbyggðri vírusvörn. Og ókeypis, sjálfvirkar öryggisuppfærslur hjálpa þér að halda tækinu uppfærðu með því nýjasta í öryggismálum.

Security Malware Protection Dgcsipufowgi Large 2X

Lykilorð.

Vistaðu lykilorð, aðgangslykla, Wi-Fi upplýsingar og aðrar innskráningarupplýsingar á einum öruggum stað. Með Passwords appinu og sjálfvirkri útfyllingu geturðu fljótt skráð þig inn í öpp og á vefsíður sem þú heimsækir oft.

Security Passwords Ffua7oozr46e Large 2X 2

Örugg á netinu.

Leiðandi persónuverndareiginleikar vernda þig gegn rakningu á milli vefsíðna í Safari, og draga úr gögnum sem send eru til þriðju aðila. Og þegar þú kveikir á Private Browsing bætirðu við öðru verndarlagi, eins og að læsa vafragluggum þegar þú ert ekki að nota þá.

Security Safari B0v6dthupbte Large 2X

Gætir persónuverndar.

macOS er með byltingarkennda innbyggða persónuverndareiginleika sem tryggja að þú getir valið hvaða gögnum skuli deilt og hvernig þeim skuli deilt.

Security Privacy Fhe1749rpdaq Large 2X

Mac + iPhone

Enn betri saman.

Mac og iPhone eru ótrúleg tæki hvort fyrir sig. Og þegar þú notar þau saman færðu aðgang að fjölda frábærra eiginleika. Það er eins og töfrabrögð.

Sjáðu og notaðu iPhone á Mac með iPhone Mirroring. Sendu og taktu á móti SMS skilaboðum á Mac með iMessage. Afritaðu texta og myndir úr iPhone yfir á Mac með Universal Clipboard. Skoðaðu myndir sem þú tekur á iPhone samstundis á Mac með Continuity Camera. Deildu nettengingu úr iPhone á Mac með Personal Hotspot.

Enn betri saman.

Uppítaka.

Skilaðu inn gjaldgengu tæki og fáðu inneign sem þú getur notað til að kaupa nýja Apple vöru.

Reiknaðu dæmið

Vara

MacBook Neo

Heildarverð

119.900 kr

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: