Helstu eiginleikar
• Apple A15 flaga
• 64GB vinnsluminni
• WiFi 6
• Styður 4K skjá
• HDMI 2.1 tengi*
• Siri fjarstýring með USB-C**
*HDMI snúra seld sér
**USB-C hleðslusnúra seld sér
Ómissandi aukahlutir
Apple TV 4K
HDR10+
Apple TV, sem er einn vinsælasti myndlykill Íslands, fær nýjan A15 Bionic örgjörva og HDR10+ stuðning sem gerir myndefni bjartara og meira lifandi. Fjarstýringin er nú með USB-C hleðslutengi í stað Lightning.

64GB - 128GB
Tvær útgáfur
Tvær útgáfur eru í boði: 64GB með þráðlausu neti og 128GB sem er bæði þráðlaust og með nettengi. Bæði tækin styðja Apple HomeKit fyrir snjallheimilið og 128GB útgáfan kemur með Threads stuðning þar að auki

Talandi um að hafa stjórn
Apple TV Remote
Snertivirkt smelliborð. Strjúktu auðveldlega í gegnum þætti, senur eða ramma með leiðandi hringhreyfingu. Kveiktu eða slökktu á sjónvarpinu þínu og stjórnaðu hljóðstyrknum.
Sérstakur Siri hnappur - alveg eins og á iPhone. Siri býður upp á skjótar og skýrar leiðir til að hafa samskipti við beiðnir þínar beint á skjánum – og með raddgreiningu fyrir allt að sex fjölskyldumeðlimi nemur Siri á Apple TV 4K hver er að tala og svarar með tilmælum sem eru sérsniðnar sérstaklega fyrir þá.
Svo hleður þú hana með USB-C

Stjórnaðu Apple TV með
iPhone
Margþætt fjarstýring gerir þér kleift að spila, gera hlé, spóla áfram, spóla til baka og stilla hljóðstyrkinn á sjónvarpinu þínu – allt frá lásskjánum á iPhone eða í Contol Centre. Þú getur staðfest kaup eða skráð þig inn í forrit með Face ID. Og iPhone hjálpar þér að finna Apple TV fjarstýringuna ef hún týnist.

Litakvörðun með
iPhone
Fullkomið kombó. Apple TV 4K vinnur með iPhone símanum þínum til að stilla liti sjálfkrafa til að líta sem best út. Beindu bara frammyndavélinni á iPhone að sjónvarpsskjánum þínum einu sinni, hallaðu þér svo aftur og sjáðu hvernig þættirnir þínir og kvikmyndir eiga að líta út.

Horfum saman með
SharePlay
Horfum saman. Með SharePlay getur þú og vinir þínir horft á kvikmyndir og sjónvarpsþætti saman, í rauntíma, á Apple TV, hver heima hjá sér. Og með Split View muntu geta upplifað hlátur, grátur, öskur eða andvarp allra án þess að missa af augnabliki af sýningunni.

