Helstu eiginleikar
27 tommu 5K Retina-skjár
14,7 milljónir pixla
600 nita birta
1 milljarður lita
Breitt litasvið (P3)
12 MP myndavél með Center Stage og Desk View
Þrír hljóðnemar
Sex hátalarar með Spatial Audio
Thunderbolt 5
MFEL4Z/A
Studio Display XDR
599.990 kr
Stærð
Skjár
Hvar fæst varan?
-
Laugavegur
-
Smáralind
-
Vefverslun

Studio Display XDR
Fullkomnun í hverjum pixli.
Sjáðu hápunktana.
Sjá nánar.
Myndgæði
Algjörlega.

Við kynnum nýja Studio Display XDR. 27 tommu Retina XDR 5K skjár sem tekur Extreme Dynamic Range á næsta stig með framúrskarandi birtu, skerpu og litum – útkoman eru stórfenglegar, raunverulegar myndir. Þetta er atvinnuskjár sem er hannaður til að uppfylla ströngustu kröfur kvikmynda-, myndbands-, hönnunar- og leikjaiðnaðarins. Velkomin á toppinn.
Fagleg vinnuflæði
Skjár með váhrifum.
Studio Display XDR býður upp á kvörðun og ýmsar viðmiðunarstillingar sem eru fullkomnar fyrir kvikmyndagerðarfólk, ljósmyndara og grafíska hönnuði. Og VFX-listamenn, teiknarar og leikjahönnuðir munu njóta góðs af skýrari smáatriðum og betri svörunartíma á skjánum.
Myndavél
Þú verður miðpunktur athyglinnar.

Studio Display XDR er með 12 MP Center Stage-myndavél sem bætir myndgæði og skilar frábærri frammistöðu í lítilli birtu. Vertu í miðju myndarinnar í myndsímtölum, jafnvel þegar þú hreyfir þig eða aðrir bætast við. Borðsýn sýnir vinnusvæðið þitt að ofan, á meðan þú ert áfram á skjánum. Kantlýsing bætir við sýndarhringljósi meðfram brúnum skjásins svo andlit þitt sé fullkomlega upplýst. Og allt þetta virkar með myndsímtalaforritunum sem þú notar mest.
Góður hljómur úr öllum áttum.

![]()
Uppfærða hljóðkerfið með sex hátölurum – þar af fjórum titringsdempandi bassahátölurum – gefur þér 30 prósent dýpri bassa. Tveir tvíterar sjá um nákvæma miðtóna og kristaltæra háa tóna. Saman skila þeir nákvæmari steríóhljómi og eru besta hljóðkerfi sem hefur verið búið til fyrir Mac.
![]()
Spatial Audio sem umlykur þig. Það er eins og að hafa eigið kvikmyndahús eða tónleikasal. Þegar þú spilar tónlist eða myndskeið með Dolby Atmos vinna hátalararnir sex saman að því að skapa flókna og kvikmyndalega hljóðmynd.
Tengingar
Heimur tenginga.
Studio Display XDR er með tvö Thunderbolt 5-tengi. Annað getur tengst og hlaðið Mac-tölvuna þína, en hitt er hægt að nota fyrir háhraða aukabúnað eða til að raðtengja fleiri skjái. Tvö USB-C-tengi er hægt að nota til að tengja ytri harða diska, lyklaborð eða mús.
2x
Thunderbolt 5
2x
USB-C
Raðtengdu einn auka
Studio Display XDR
Standur
Fínstilltur fyrir þig.
Með Studio Display XDR fylgir standur með halla- og hæðarstillingu svo þú getir auðveldlega stillt skjáinn í rétta hæð og horn. Hann er með mótvægisarmi sem gerir kleift að stilla hallann um 30 gráður og hæðina um 105 mm – og lætur skjáinn virðast þyngdarlausan þegar þú stillir hann.


VESA-festing. Fyrir þá sem vilja sveigjanlegri uppsetningu styður VESA-festingin bæði lárétta og lóðrétta stöðu. Það er einnig samhæft við VESA-staðlaðar veggfestingar, borðfestingar, standa og sveifluarma sem eru 100 x 100 mm.





















