Helstu eiginleikar
Með Lightning-í-USB 3 myndavélarbreytistykkinu er auðvelt að flytja myndir og myndskeið úr hágæða stafrænni myndavél yfir á iPad Pro. Þegar þú hefur tengt Lightning-í-USB 3 myndavélarbreytistykkið opnar iPad Pro sjálfkrafa Photos-forritið þar sem þú getur valið myndir og myndskeið til að flytja inn og síðan raðað þeim í albúm.
Auktu möguleika og fjölhæfni iPad Pro enn frekar með því að knýja Lightning-í-USB 3 myndavélarbreytistykkið með USB-straumbreyti. Þá geturðu tengt USB-jaðartæki eins og hubba, Ethernet-millistykki, hljóð-/MIDI-tengi og kortalesara fyrir CompactFlash, SD, microSD og fleira.
Lightning-í-USB 3 myndavélarbreytistykkið styður hefðbundin myndasnið, þar á meðal JPEG og RAW, ásamt SD- og HD-myndskeiðasniðum, þar á meðal H.264 og MPEG-4. 12,9 tommu iPad Pro (1. og 2. kynslóð) og 10,5 tommu iPad Pro flytja gögn á USB 3 hraða, en 9,7 tommu iPad Pro notar USB 2.
MX5J3ZM/A
Apple Lightning í USB-A breytistykki fyrir myndavé
8.990 kr
Hvar fæst varan?
-
Laugavegur
-
Smáralind
-
Vefverslun