Helstu eiginleikar

• Apple M6 flaga
• 10-Core CPU
• 10-Core GPU
• 16GB vinnsluminni
• 256GB SSD
• Dual 16-Core Neural Engine
• 24" 4.5K Retina skjár
• 12MP 1080p Center Stage Camera
• 2 Thunderbolt 4/USB4 tengi
• Magic lyklaborð eða Magic lyklaborð með Touch ID
• Magic mús
• 100-240V AC

Z1RP

Nýtt
Verðlækkun

iMac 24" M6

Verð

289.990 kr

Error

Netfang móttekið

Takk fyrir að hafa samband. Við munum hafa samband um leið og varan er aftur fáanleg.

Litur

  • Silfur
  • Grænn
  • Blár
  • Bleikur

Veldu þína tegund

Hvar fæst varan?

  • Laugavegur

  • Smáralind

  • Vefverslun

Þú gætir haft áhuga á

Flaga

Flaga

Nýja M6 flagan.
Fer létt með öll verkefnin.

Litir

Litir

Sjö líflegir litir. Áberandi þunn hönnun. Besta allt-í-einu borðtölva í heimi.

Gervigreind

Gervigreind

 

Skjár

Skjár

Glæsilegur 24 tommu 4,5K Retina-skjár. Upplifðu hvert smáatriði.

Stýrikerfi

Stýrikerfi

macOS. Fleiri eiginleikar en nokkru sinni fyrr. Ótrúlega hraðvirkt og viðbragðsfljótt. Einstakt í alla staði.

Samtenging

Samtenging

iMac og iPhone. Vinna enn betur saman.

Screenshot 2026 10 30 At 11.38.05
Afköst
Meira afl. Meiri litadýrð.
iMac er knúin M6-flögunni, sem gerir allt sem þú tekur þér fyrir hendur liprara, hraðara og orkunýtnara. Hraðari örgjörvi og taugahröðlari í hverjum grafíkkjarna flýta bæði daglegum verkefnum og krefjandi vinnslu — allt frá vafri í Safari til mynd- og myndbandsvinnslu. Allt að 32 GB af sameinuðu minni tryggja hnökralausa leikjaupplifun og fjölverkavinnu. Og fyrsti tvöfaldi 16 kjarna taugavélbúnaðurinn gefur gervigreind sem keyrir í tækinu byr undir báða vængi.

Hvort sem þú heldur utan um heimilisbókhaldið, rekur fyrirtæki eða vinnur að skólaverkefnum hjálpar iMac þér að afkasta meiru á skemmri tíma — allt á glæsilegum 4,5K Retina-skjá.

M6

Allt að 18x hraðari en vinsælasti iMac með Intel-örgjörva

Allt að 12x hraðari en iMac með M1

Allt að 5x hraðari en iMac með M4 í gervigreind á tækinu

iMac 24" M6
Ai Apps Bmlzqztzg3w2 Large
Gervigreind
Snjöll vinnubrögð.
iMac með M6 nýtir gervigreind til að einfalda dagleg verkefni, hvort sem þú ert að sinna fjölskyldunni, skapandi störfum eða reka lítið fyrirtæki — án þess að fórna friðhelgi þinni. Hvort sem þú notar Apple Intelligence í forritum og macOS, keyrir gervigreindarlíkön á Mac-tölvunni eða forritar með aðstoð gervigreindar, hjálpar iMac þér að vinna af meiri afköstum og öryggi.

Mac er fínstilltur fyrir gervigreindarforrit á borð við Claude, LM Studio Bionic, Gemini og forritasafn Topaz Labs. Þannig geturðu lært hraðar, hugsað á nýjan hátt og komið meiru í verk.

Privacy icon
Með miklum kröftum fylgir mikil persónuvernd.
Apple Intelligence og Siri AI eru hönnuð með friðhelgi þína í huga á öllum stigum. Öflug úrvinnsla í tækinu gerir Apple Intelligence kleift að taka mið af persónulegum upplýsingum þínum án þess að safna þeim. Með byltingarkenndri einkaskýjaúrvinnslu getur Apple Intelligence einnig nýtt sér stærri líkön á netþjónum án þess að gögnin þín verði aðgengileg Apple eða öðrum.
Screenshot 2026 10 30 At 12.46.40
Skjár
Skýrleiki sem gleður augað.
Með stórum 24 tommu Retina-skjá býður iMac upp á frábæran flöt fyrir fjölverkavinnu, kvikmyndir og leiki sem draga þig inn í miðja atburðarásina — og svo margt fleira. 4,5K-upplausn og 500 nit birta skila skörpum og skýrum smáatriðum. Upplausnin er fimmfalt meiri og skjárinn næstum 70% bjartari en á mest seldu 24 tommu allt-í-einu-tölvunni. P3-litasvið gefur öllu á skjánum líf með yfir milljarði lita.
Tvö börn horfa á fjólubláa iMac-tölvu með nanóáferðargleri á viðarborði

iMac fæst einnig með Nano Texture gleri. Það dregur úr speglun og glampa svo ekkert truflar, án þess að það komi niður á myndgæðunum. Það hentar vel þar sem birtuskilyrði eru krefjandi – hvort sem þú situr við glugga eða undir björtum loftljósum.

Hljóðnemar í stúdíógæðum. Hljóðnemarnir í iMac sjá til þess að röddin þín berist skýrt og greinilega. Og með stefnuvirkri geislamótun heyra allir í þér – ekki því sem er að gerast í kringum þig.

Sex hátalara hljóðkerfi. iMac skilar mögnuðum hljómi í hvaða rými sem er. Tvö pör af bassahátölurum sem vinna gegn titringi, ásamt tveimur diskant hátölurum, fylla rýmið af kraftmiklum hljómi með djúpum bassa. Og rýmishljóð með stuðningi við Dolby Atmos skapar umlykjandi hlustunarupplifun.

macOS
Afkastamikil. Ánægjuleg.
Öflug forrit og hnökralaus fjölverkavinnsla í macOS styðja við það hvernig þú vinnur, skapar og tengist öðrum. Leitaðu og framkvæmdu hundruð aðgerða með Spotlight. Njóttu skýrrar, samræmdrar og sérsniðanlegrar upplifunar með glæsilegri Liquid Glass-hönnun. Og hjálpaðu til við að tryggja öryggi barna á netinu með einföldum og aðgengilegum foreldraeftirlitsstillingum.
iMac + iPhone
Betri saman.
iMac færir allt það sem þér þykir vænt um í iPhone yfir á stóran og glæsilegan skjá. Og þegar tækin vinna saman verður samspilið enn betra: þú getur fært þig áreynslulaust á milli þeirra, deilt skrám og myndum, haldið áfram verkefnum og jafnvel stjórnað iPhone úr iMac.
iPhone Mirroring

iPhone Mirroring

Skoðaðu og notaðu efnið í iPhone-símanum þínum á iMac, án þess að þurfa að taka símann upp. Færðu skrár, myndir og myndskeið á milli tækjanna með því einu að draga þau á milli forrita á Mac.

Universal Clipboard

Universal Clipboard

Afritaðu texta, myndir og myndskeið á iPhone og límdu á iMac — eða öfugt.

Símtöl og skilaboð

Símtöl og skilaboð

Símtöl og skilaboð úr iPhone birtast beint á iMac, svo þú þarft ekki að skipta um tæki þegar þú ert á fullu.

Tengi og tengimöguleikar
Töfrandi. Tengingar

Segulmagnað aðdráttarafl. Samlitt rafmagnstengi smellur áreynslulaust á sinn stað með segli.

Öflug tengi. Fleiri möguleikar. iMac er með tveimur eða fjórum Thunderbolt 4-tengjum sem fjölgar möguleikum á aukahlutum og gerir gagnaflutning leifturhraðan. Og þú getur tengt allt að tvo auka 6K-skjái og fengið víðáttumikinn striga fyrir verkin þín.

Tenging með Wi-Fi 7 og Bluetooth 6

Fáanleg með
2,5 Gb Ethernet

Stuðningur við allt að tvo auka 6K-skjái

Tvö eða fjögur Thunderbolt 4-tengi

Accessories Btnj2lfq21si Large
Aukahlutir
Fullkomnaðu vinnuaðstöðuna.
Með iMac fylgja lyklaborð og mús í stíl við tölvuna, öll með USB‑C-tengjum. Þú getur því hlaðið uppáhaldstækin þín með einni snúru. Magic Mouse og Magic Trackpad gera flakk um tölvuna þægilegt og einfalt. Með Magic Keyboard með Touch ID geturðu svo opnað iMac á einfaldan og öruggan hátt, skipt um notanda, staðfest greiðslur með Apple Pay og sótt forrit.

Vara

iMac 24" M6

Heildarverð

289.990 kr

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: