MacBook Neo

frá 119.900 kr.

Við kynnum MacBook Neo – frábæra Mac á verði sem ekki hefur sést áður. Velkomin í fjölskylduna.

MacBook Neo

frá 119.900 kr.

Við kynnum MacBook Neo – frábæra Mac á verði sem ekki hefur sést áður. Velkomin í fjölskylduna.

Skoða verð

Silfur, ljósbleikur, sítrus og indígóblár.
Fjórir flottir litir í sterkri hönnun.

MacBook Neo

Afköst

Drifkraftur fyrir allt
sem þú gerir.

Með A18 Pro flögunni geturðu keyrt uppáhaldsöppin þín, sinnt daglegum verkefnum á augabragði, verið skapandi og spilað hasarleiki. Svo sama hvað dagurinn ber í skauti sér, þá geturðu haldið í við allt sem veitir þér innblástur.

Skilvirkni í dagsins önn.
Svaraðu tölvupóstum, taktu myndsímtöl, vafraðu á netinu, uppfærðu stefnumót og viðburði, deildu myndum – þú hefur fulla stjórn á verkefnalistanum þínum með MacBook Neo.

Skilvirkni í dagsins önn.
Svaraðu tölvupóstum, taktu myndsímtöl, vafraðu á netinu, uppfærðu stefnumót og viðburði, deildu myndum – þú hefur fulla stjórn á verkefnalistanum þínum með MacBook Neo.

Létt námstæki.
MacBook Neo er fullkomin fyrir nám – hvort sem þú ert að lesa fyrir próf, nota Apple Intelligence til að draga saman glósurnar þínar eða útbúa kynningar.

Létt námstæki.
MacBook Neo er fullkomin fyrir nám – hvort sem þú ert að lesa fyrir próf, nota Apple Intelligence til að draga saman glósurnar þínar eða útbúa kynningar.

Gerir vinnuna að leik.
Frá því að búa til töflureikni til að sjá um launagreiðslur, MacBook Neo getur hjálpað þér að klára verkið.

Gerir vinnuna að leik.
Frá því að búa til töflureikni til að sjá um launagreiðslur, MacBook Neo getur hjálpað þér að klára verkið.

Kristaltær fyrir allt sem er skemmtilegt.
Með glæsilegri grafík og litríkum Liquid Retina-skjá birtast kvikmyndir, þættir, myndbönd og leikir með ótrúlegum smáatriðum.

Kristaltær fyrir allt sem er skemmtilegt.
Með glæsilegri grafík og litríkum Liquid Retina-skjá birtast kvikmyndir, þættir, myndbönd og leikir með ótrúlegum smáatriðum.

Svínvirkar fyrir dagleg verkefni. A18 Pro-flagan gefur uppáhaldsöppunum þínum og gervigreind byr undir báða vængi. Og þú hefur afl og skilvirkni innan seilingar á augabragði.

Traustur förunautur.
MacBook Neo er tilbúin að fylgja þér hvert sem er, allt frá fyrirlestrum að morgni til vafurs seint að kvöldi.

Allt að
16 klst.
rafhlöðuending

Skjár, myndavél og hljóð

Veisla fyrir skilningarvitin.

Myndir og myndskeið fá ríkulega skerpu og skýr smáatriði. Texti verður afar skýr og auðlesinn. Og tveir hátalarar á hliðunum umlykja þig hljóði.

13" Liquid Retina-skjár með stuðning fyrir 1 milljarð lita.

3,6 milljónir
pixla gefa ótrúlega upplausn

500
nita birta

1080p FaceTime HD-myndavélin tryggir raunveruleg myndgæði svo þú lítur alltaf frábærlega út.

Tveir hljóðnemar með stefnuvirkri geislamyndun einangra og magna röddina þína um leið og þeir draga úr bakgrunnshávaða. Röddin þín verður skýr og greinileg.

Tveir hátalarar á hliðunum tryggja yfirgripsmikið hljóð. Og rýmishljóð (e. Spatial Audio) með stuðningi fyrir Dolby Atmos gefur þrívíddarhljóðupplifun fyrir tónlist, þætti og kvikmyndir.

macOS

Fær stjórnandi.

macOS er öflugt og notendavænt stýrikerfi sem gerir Mac að því sem hann er. Ef þú átt nú þegar iPhone mun allt virka kunnuglega. Einföld yfirsýn. Ókeypis sjálfvirkar uppfærslur. Öpp sem keyra hnökralaust. Allt saman í Liquid Glass-hönnun sem sýnir allt sem þú gerir skýrt og greinilega.

Gerðu allt. Einfaldlega. macOS er einfalt og leiðandi, með skjótum aðgangi að forritum og skrám, góðu skipulagi á mörgum gluggum og skilvirkri stýringu með Multi-Touch trackpad.

Innbyggð forrit frá Apple. Vafraðu á netinu með Safari. Búðu til glæsilegar kynningar í Keynote. Hringdu í vini með FaceTime. MacBook Neo kemur með forritum sem eru tilbúin fyrir bæði vinnu og skemmtun í daglega lífinu.

Notaðu uppáhaldsforritin þín. Allt frá Microsoft 365 Copilot til Zoom – forritin sem þú þekkir og elskar keyra hnökralaust á Mac. Sæktu bara uppáhaldsforritin þín úr App Store og finndu þúsundir annarra á meðan þú ert þar.

Virkar eins og þú vilt. Sérsníddu MacBook Neo með ljósum og dökkum ham, bættu við lituðum táknum og stækkaðu eða minnkaðu Dock eða tækjastikur til að fá allt eins og þú vilt hafa það.

Fljótlegt með Spotlight. Finndu dótið þitt á augabragði á MacBook Neo og fáðu uppástungur úr forritum, skrám, aðgerðum, af internetinu og úr Universal Clipboard.

Persónuvernd og öryggi

Öryggið framar öllu.

MacBook Neo er hönnuð frá grunni með sama háþróaða öryggi og er staðalbúnaður í öllum Mac-tölvum. Með sjálfvirkri dulkóðun gagna, ókeypis vírusvörn og reglulegum öryggisuppfærslum geturðu verið viss um að þú og gögnin þín séu örugg á netinu.

Læsingarhnappur eða Touch ID.

MacBook Neo gerðin með læsingarhnappi gerir það auðvelt að vekja og læsa Mac-tölvunni og að kveikja og slökkva á henni. MacBook Neo með Touch ID notar fingrafarið þitt til að aflæsa Mac-tölvunni, samþykkja greiðslur og skrá þig inn í öpp og á vefsíður.

Varin ef hún týnist.

Find My appið hjálpar þér að finna MacBook Neo tölvuna þína og læsa henni eða fjarhreinsa hana. Og FileVault dulkóðar gögnin þín sjálfkrafa svo þau verða algerlega ólesanleg – og gögnin þín eru áfram örugg þótt þú týnir Mac-tölvunni eða henni sé stolið.

Passar upp á öryggið.

MacBook Neo er með ókeypis, innbyggðri vírusvörn. Og ókeypis, sjálfvirkar öryggisuppfærslur hjálpa þér að halda tækinu uppfærðu með því nýjasta í öryggismálum.

Lykilorð.

Vistaðu lykilorð, aðgangslykla, Wi-Fi upplýsingar og aðrar innskráningarupplýsingar á einum öruggum stað. Með Passwords appinu og sjálfvirkri útfyllingu geturðu fljótt skráð þig inn í öpp og á vefsíður sem þú heimsækir oft.

Örugg á netinu.

Leiðandi persónuverndareiginleikar vernda þig gegn rakningu á milli vefsíðna í Safari, og draga úr gögnum sem send eru til þriðju aðila. Og þegar þú kveikir á Private Browsing bætirðu við öðru verndarlagi, eins og að læsa vafragluggum þegar þú ert ekki að nota þá.

Gætir persónuverndar.

macOS er með byltingarkennda innbyggða persónuverndareiginleika sem tryggja að þú getir valið hvaða gögnum skuli deilt og hvernig þeim skuli deilt.

Mac + iPhone

Enn betri saman.

Mac og iPhone eru ótrúleg tæki hvort fyrir sig. Og þegar þú notar þau saman færðu aðgang að fjölda frábærra eiginleika. Það er eins og töfrabrögð.

Sjáðu og notaðu iPhone á Mac með iPhone Mirroring. Sendu og taktu á móti SMS skilaboðum á Mac með iMessage. Afritaðu texta og myndir úr iPhone yfir á Mac með Universal Clipboard. Skoðaðu myndir sem þú tekur á iPhone samstundis á Mac með Continuity Camera. Deildu nettengingu úr iPhone á Mac með Personal Hotspot.

Enn betri saman.

MacBook Neo

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Viò metum gömlu tækin þín til fjár. Við tökum gamla símann, snjallúrið, tölvuna og jafnvel gömlu spjaldtölvuna upp í nýja vöru hjá Epli.

Skoða uppítökuverð

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: