MacBook Neo
Afköst
Drifkraftur fyrir allt
sem þú gerir.
Með A18 Pro flögunni geturðu keyrt uppáhaldsöppin þín, sinnt daglegum verkefnum á augabragði, verið skapandi og spilað hasarleiki. Svo sama hvað dagurinn ber í skauti sér, þá geturðu haldið í við allt sem veitir þér innblástur.
Svínvirkar fyrir dagleg verkefni. A18 Pro-flagan gefur uppáhaldsöppunum þínum og gervigreind byr undir báða vængi. Og þú hefur afl og skilvirkni innan seilingar á augabragði.

Traustur förunautur.
MacBook Neo er tilbúin að fylgja þér hvert sem er, allt frá fyrirlestrum að morgni til vafurs seint að kvöldi.
Allt að
16 klst.
rafhlöðuending
Mac + iPhone
Ef þú elskar iPhone, þá muntu ❤️ Mac.
Mac er hannaður til að vera jafn auðveldur í notkun og iPhone. Og þegar þú notar Mac og iPhone - sem og önnur Apple tæki - saman, getur þú gert ótrúlega hluti. Hér eru nokkur dæmi:
Sjáðu og notaðu iPhone á Mac með iPhone Mirroring. Sendu og taktu á móti SMS skilaboðum á Mac með iMessage. Afritaðu texta og myndir úr iPhone yfir á Mac með Universal Clipboard. Skoðaðu myndir sem þú tekur á iPhone samstundis á Mac með Continuity Camera. Deildu nettengingu úr iPhone á Mac með Personal Hotspot.
