Leiðbeiningar fyrir Mac

Leiðbeiningar fyrir Mac

Þrif á Mac

Lærðu hvernig á að þrífa Mac tölvuna þína.

Apple vörur eru framleiddar úr ýmsum efnum og hver vara gæti þurft sérstaka hreinsimeðferð. Til að byrja með eru hér nokkur ráð sem eiga við allar vörur:

  • Notaðu aðeins mjúkan, rykfríann klút. Forðastu grófa klúta, handklæði, pappírsþurrkur eða svipaða hluti.
  • Forðastu óhóflegt nudd sem gæti valdið skemmdum.
  • Taktu úr sambandi alla ytri aflgjafa, tæki og snúrur.
  • Haltu vökvum frá vörunni, nema annað sé tekið fram fyrir tilteknar vörur.
  • Láttu ekki raka komast í nein op.
  • Ekki nota úðabrúsa, klór eða slípiefni.
  • Ekki úða hreinsiefnum beint á vöruna.

Er í lagi að nota sótthreinsiefni á Apple vöruna mína?
Þú mátt varlega þurrka af hörðum, ógljúpum yfirborðum Apple vörunnar þinnar, svo sem skjánum, lyklaborðinu eða öðrum ytri flötum, með 70 prósent ísóprópýlalkóhól klút, 75 prósent etýlalkóhól klút eða Clorox sótthreinsiklútum. Ekki nota þessar hreinsiefnavörur á Apple Vision Pro þar sem þær gætu skemmt tækið. Ekki nota vörur sem innihalda klór eða vetnisperoxíð. Forðastu að raki komist í op tækisins og ekki sökkva Apple vörunni þinni í nein hreinsiefni. Ekki nota á efni eða leðurfleti.

Ef vökvi kemst inn í Apple vöruna þína skaltu leita hjálpar hjá viðurkenndum Apple þjónustuaðila eða Apple verslun eins fljótt og auðið er. Vökvaskaði fellur ekki undir ábyrgð Apple vörunnar. Ef þú ætlar að heimsækja Apple verslun skaltu panta tíma hjá Genius Bar (aðeins í boði í sumum löndum og svæðum). Engar tímapantanir eru á verkstæði Epli og ekki þarf að láta vita af komu fyrirfram, bara mæta.

Fartölvur

Lærðu hvernig á að þrífa Mac fartölvuna þína.

MacBook, MacBook Pro og MacBook Air

Ef Mac-tölvan þín er með möttum nanó-áferðarskjá (e. nano-texture display) skaltu fylgja leiðbeiningum fyrir þá skjái hér að neðan.

Þegar þú þrífur ytra byrði MacBook, MacBook Pro eða MacBook Air tölvunnar þinnar skaltu fyrst slökkva á tölvunni og taka straumbreytinn úr sambandi. Notaðu síðan rakan, mjúkan, lófríann klút til að þrífa ytra byrði tölvunnar. Forðastu að láta raka komast í op. Ekki úða vökva beint á tölvuna. Ekki nota úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu skemmt áferðina.

Til að þrífa skjáinn á MacBook, MacBook Pro eða MacBook Air tölvunni þinni skaltu fyrst slökkva á tölvunni og taka straumbreytinn úr sambandi. Vætu mjúkan, lófríann klút eingöngu með vatni og notaðu hann síðan til að þrífa skjá tölvunnar.

Til að þrífa erfiða bletti eða fingraför af skjánum eða ytra byrði Mac-tölvunnar þinnar geturðu notað klút vættan með 70% ísóprópýlalkóhóllausn (IPA) til að strjúka varlega af skjánum eða ytra byrði Mac fartölvunnar þinnar.

MacBook Pro módel frá 2016 og nýrri með Touch Bar og Touch ID: Þrífðu Touch Bar og Touch ID (aflhnappinn) á þessum tölvum á sama hátt og þú myndir þrífa skjáinn. Slökktu á Mac-tölvunni þinni og taktu straumbreytinn úr sambandi. Vætu mjúkan, lófríann klút eingöngu með vatni og notaðu hann síðan til að þrífa Touch Bar og Touch ID.

MacBook (13 tommu, seint 2009) og MacBook (13 tommu, miðjan 2010): Botnhlíf þessara tölva notar mjúkt efni sem rennur ekki til. Notaðu 3M Gray Microfiber eða mjúkan, litlausa, lófríann klút til að þrífa botnhlífina.

Borðtölvur

Lærðu hvernig á að þrífa Mac borðtölvuna þína.

Mac Pro, Mac Studio, Mac mini og iMac

Ef Mac-tölvan þín er með möttum nanó-áferðarskjá (e. nano-texture display) skaltu fylgja leiðbeiningum fyrir þá skjái hér að neðan.

Fyrst skaltu slökkva á Mac-tölvunni þinni og taka rafmagnssnúruna úr sambandi ásamt öðrum tengdum tækjum. Notaðu síðan rakan, mjúkan, lófríann klút til að þrífa ytra byrði tölvunnar. Forðastu að láta raka komast í op. Ekki úða vökva beint á tölvuna. Ekki nota úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu skemmt áferðina.

Til að þrífa skjáinn á iMac tölvunni þinni skaltu væta klútinn sem fylgdi með iMac tölvunni þinni - eða annan hreinan, mjúkan, lófríann klút - eingöngu með vatni og strjúka síðan af skjánum. Til að þrífa erfiða bletti geturðu vætt klútinn með 70% ísóprópýlalkóhóllausn (IPA).

Ekki þrífa skjáinn á iMac tölvunni þinni með hreinsiefni sem inniheldur asetón. Notaðu hreinsiefni sem er ætlað til notkunar á skjái. Úðaðu aldrei hreinsiefni beint á skjáinn. Það gæti lekið inn í skjáinn og valdið skemmdum.

Skjáir

Ef Apple Pro Display XDR eða Apple Studio Display skjárinn þinn er með matt nanó-áferðargler (e. nano-texture glass) skaltu fylgja leiðbeiningunum fyrir þá skjái hér að neðan.

Fyrst skaltu aftengja skjáinn frá rafmagni, frá tengingu við tölvu og frá öllum ytri tækjum. Notaðu síðan klútinn sem fylgdi með skjánum þínum eða annan mjúkan, þurran klút til að þurrka ryk af skjánum.

Ef þörf er á frekari þrifum á skjánum eða ytra byrðinu skaltu nota mjúkan, lítillega rakan, lófríann klút. Forðastu að láta raka komast í op. Ekki nota gluggahreinsiefni, heimilishreinsiefni, úðabrúsa, leysiefni, ammoníak, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð til að þrífa skjáinn.

Ekki þrífa skjáinn með hreinsiefni sem inniheldur asetón. Notaðu hreinsiefni sem er ætlað til notkunar á skjái. Úðaðu aldrei hreinsiefni beint á skjáinn. Það gæti lekið inn í skjáinn og valdið skemmdum.

Hvernig á að þrífa nanó-áferðarskjá frá Apple

Ef Apple Studio Display, Apple Pro Display XDR, iMac, MacBook Pro eða iPad Pro (M4) skjárinn þinn er með nanó-áferð skaltu fylgja þessum mikilvægu leiðbeiningum til að koma í veg fyrir skemmdir þegar þú þrífur skjáinn.

Þrif á nanó-áferðarskjánum

Til að fjarlægja ryk eða bletti af nanó-áferðarskjánum skaltu nota fægiklútinn (Apple Polishing Cloth) sem fylgdi með Studio Display, Pro Display XDR, iMac, MacBook Pro eða iPad Pro (M4) skjánum þínum.

Fyrir óregluleg þrif á erfiðum blettum geturðu vætt klútinn með 70% ísóprópýlalkóhóllausn (IPA).

Ef þú týnir klútnum sem fylgdi getur þú pantað nýjan á verkstæði Epli. Panta hér

Þrif á fægiklútnum

  1. Handþvoið fægiklútinn með uppþvottalegi og vatni.

  2. Skolið vandlega.

  3. Látið klútinn þorna í að minnsta kosti 24 klukkustundir.

Jaðartæki

Þráðlaus eða USB lyklaborð, mýs og snertifletir frá Apple

Fyrst skal slökkva á tækinu. Ef tækið notar rafhlöður sem hægt er að fjarlægja, takið rafhlöðurnar úr. (Ef tækið er snúrutengt, takið það einfaldlega úr sambandi við tölvuna.)

Næst skal hreinsa ytra byrði tækisins með rykfríum klút sem er lítillega rakur af vatni. Forðist að láta raka komast í op á tækinu eða nota úðabrúsa, leysiefni, hrjúf hreinsiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð.

Ef Magic Mouse eða Magic Mouse 2 músin þín er ekki að nema hreyfingar almennilega gæti verið hár eða önnur óhreinindi á linsunni. Snúið músinni við og skoðið linsugluggann með björtu ljósi. Ef þú sérð óhreinindi skaltu nota þrýstiloft til að hreinsa linsugluggann varlega.

Snúrur

Til að hreinsa Apple snúruna þína skaltu taka báða enda snúrunnar úr sambandi við tækið og straumbreytinn. Notaðu síðan mjúkan, lítillega rakan, rykfríann klút til að þurrka meðfram allri lengd snúrunnar. Ef snúran er enn ekki hrein skaltu nota mjúkan rykfríann klút vættan með sápuvatni til að þurrka meðfram allri lengd snúrunnar. Notaðu þurran klút til að þurrka snúruna og fjarlægja allan umframraka. Forðastu að láta raka komast nálægt tengjunum á snúrunni. Leyfðu snúrunni að þorna yfir nótt áður en þú notar hana aftur með tækinu þínu.

Fyrirmynd greinar sótt á vef Apple 13. maí 2025

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: