Um okkur
Apple VAD á Íslandi
Epli - Skakkiturn ehf. rekur Apple VAD á Íslandi og AASP í umboði Apple Inc. í Bandaríkjunum. Hlutverk fyrirtækisins er að sjá um innflutning, dreifingu, markaðssetningu, sölu og þjónustu á íslenska markaðssvæðinu.
VAD viðskeytið stendur fyrir Value Added Distributor eða virðisaukandi dreifingaraðili. Þetta rekstrarfyrirkomulag er til staðar á smærri mörkuðum heimsins.
AASP stendur fyrir Apple Authorised Service Provider eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple.
Fyrirtækið opnaði fyrstu Apple verslunina í Brautarholti 10–14 þann 1. apríl 2003. Þar blómstruðu viðskiptin sem aldrei fyrr og má segja að það húsnæði hafi sprungið strax eftir nokkurra mánaða rekstur.
Í ársbyrjun 2006 fluttist starfsemin á Laugaveg 182 þar sem ein glæsilegasta tölvuverslun Norðurlanda er til húsa ásamt skrifstofum og þjónustu.
Hafa samband
Sendu okkur tölvupóst með því að smella hér.