Watch Ultra 2

Watch Ultra 2

Apple Watch Ultra 2 er ævintýralegt snjallúr hannað með jaðaríþróttir í huga, byggt á nýrri hönnun og ótrúlegum eiginleikum.

Watch Ultra 2
Ævintýrin bíða

Watch Ultra 2
Ævintýrin bíða

Apple Watch Ultra er útbúið háværri 86 dB sírenu fyrir neyðartilvik.

Ævintýrin bíða

Apple Watch Ultra 2

Apple Watch Ultra 2 er nýtt úr frá Apple með nýrri framúrstefnulegri hönnun og ótrúlegum eiginleikum sem eru byggðir fyrir þrekvirki, landkönnun og ævintýri. Úrkassinn er byggður með málminum títaníum, glerið úr höggheldum safír og er kassinn 49mm hár sem gerir það stærsta úrið með mesta skjáplássið í vörulínu Apple. Á úrinu er nýr Action-takki sem er hægt að sníða að sínum þörfum og kemur þér fyrr á réttan stað. Apple Watch Ultra er með lengstu rafhlöðuendingu allra Apple úra, og endist í allt að 36 klukkutíma við venjulega notkun. Úrið er einnig með nýja orkusparnaðarstillingu sem nær að teygja rafhlöðuna í allt að 60 klukkutíma. Ný skífa, Wayfinder, hefur verið sérstaklega hönnuð til að nýta sér aukið skjápláss og býður upp á innbyggðan áttavita og pláss fyrir allt að átta upplýsingasvæði (e. complications).

Apple Watch Ultra 2

Apple Watch Ultra 2

Ólar

Þrjár nýjar ólar með ákveðin ævintýri í huga

Þrjár nýjar ólar með ákveðin ævintýri í huga eru í boði: Trail Loop fyrir langhlaupara, Alpine Loop fyrir fjallafólk og Ocean Band fyrir kafara.

Þrjár nýjar ólar fyrir langhlaupara, fjallafólk og vatnssport.

Þrjár nýjar ólar með ákveðin ævintýri í huga

Apple Watch Ultra 2

Innblásið af landkönnuðum og íþróttafólki um víða veröld

Hönnuðir Apple sækja innblástur til landkönnuða og íþróttafólks um allan heim til að búa til nýja vörulínu Apple úra sem þola krefjandi umhverfi. „Apple Watch Ultra er harðgerðasta og öflugasta úr Apple til þessa‟ segir Jeff Williams rekstrarstjóri Apple. „Apple Watch Ultra er sveigjanlegt tól sem gefur fólki vald til þess að auka getu sína við ævintýramennsku, þrekþrautir og landkönnun.‟ .

Innblásið af landkönnuðum og íþróttafólki um víða veröld
Innblásið af landkönnuðum og íþróttafólki um víða veröld

Apple Watch Ultra 2

Stærra, bjartara og harðgerðara

Úrið er byggt úr hágæða títaníum-málmi sem stenst kröfur flugiðnaðarins, sem skilar úrinu fínu jafnvægi fyrir þyngd, endingu og vörn gegn tæringu. Úrkassinn stendur aðeins upp fyrir safír-glerið til að veita skjánum aukna rispu- og höggvörn. Skjárinn er tvöfalt bjartari en fyrri skjáir úra Apple og getur mest birt 2000-nits. Nýi Action-takkinn er í alþjóðlegum appelsínugulum lit sem stendur skarpur á móti lit úrsins og er hægt að velja sér aðgerð fyrir takkann sem kemur þér fyrr inn í Workouts appið, getur búið til punkt fyrir áttavitann, rekið þig til baka á slóða og margt annað.

Stærra, bjartara og harðgerðara
Stærra, bjartara og harðgerðara

Hljóð

Miklu betra hljóð

Það eru þrír innbyggðir hljóðnemar á úrinu sem bæta talsvert talgæði í samtölum við alls konar aðstæður. Úrið nýtir sér hugbúnað til að staðsetja og aðlaga hljóð svo hægt sé að grípa rödd úr hávaða og takmarkar þá í leiðinni bakgrunnshljóð sem skilar skýru hljóði til hlustanda. Í mjög miklu roki getur úrið nýtt sér nýjan hugbúnað byggðan á vélanámi til að takmarka hávaða og skila tæru hljóði fyrir samtöl.

Ný stafræn krúna er stærri og grófari svo hægt sé að nota hana með hönskum.

Miklu betra hljóð

Þolir frost og hita

Frost og hiti

Apple Watch Ultra þolir allt að -20° frost og 55°C hita. Það hefur verið vottað fyrir MIL-STD-810H, sem er þekkt vottorð hjá framleiðendum harðgerðs búnaðar og hergagnaframleiðenda. Úrið getur kafað niður á 40 metra dýpi og sýnt þér dýptarmælingar. Í samstarfi við Huish Outdoors, mun úrið geta tengst köfunarbúnaði.

Apple Watch Ultra getur farið niður 40 metra dýpi.

Frost og hiti

ÍÞróttir

Þrekíþróttir og afreksíþróttafólk

Apple Watch Ultra er frábært tól fyrir afreksíþróttafólk sem ætlar sér að ná nýjum hæðum. Nú í fyrsta sinn styður Apple Watch tvírása GPS, bæði L1 og L5, sem eykur nákvæmni til muna. Úrið nýtir sér einnig hugbúnað til að staðsetja sig betur. Þannig færðu mun betri staðsetningu en áður, sem gefur þér betri innsýn í vegalengdir, hröðun, og leiðsögn fyrir keppnisbrautir.

Ný skífa Apple Watch Ultra, Wayfinder, getur sýnt lifandi áttavita og allt að 8 upplýsingasvæði.

Þrekíþróttir og afreksíþróttafólk

Stýrikerfi

WhatchOS 9

Apple Watch Ultra styður nýjasta stýrikerfið Apple fyrir snjallúr: WatchOS 9 sem kom út nú í haust. Nýjasta nýtt þar er eiginleikar til að greina hlaup betur með því að skoða lengd stigs, tíma snertingar við jörð, lóðrétta sveiflu og hlaupakraft. Workout appið fær stóra uppfærslu og býður upp á ný viðmót sem sýna hlaupakafla, splitt og hækkun.sjálfkrafa. Rafhlöðuending Apple Watch Ultra dugar nú flestu fólki heilt maraþon, 3,86 km. sund og 180 km. hjólaferð í einni atrennu. Hægt er að stilla Action-takkann þannig hann hefji ykkar eigin hreyfingu, eða færi fólk yfir á næsta stig fjölþrautar.

WhatchOS 9

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Nýttu gamla tækið
upp í nýtt.

Viò metum gömlu tækin þín til fjár. Við tökum gamla símann, snjallúrið, tölvuna og jafnvel gömlu spjaldtölvuna upp í nýja vöru hjá Epli.

Skoða uppítökuverð

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: