Helstu eiginleikar

• Apple M5 Max flaga
• 18-Core CPU
• 32-Core GPU
• 36GB sameinað vinnsluminni
• 512GB SSD
• 16-Core Neural Engine
• 6x Thunderbolt/USB 4 tengi
• Lyklaborð og mús seld sér
• Trackpad selt sér
• 100-240V AC

Z1U4

Nýtt
Verðlækkun

Mac Studio M5

Verð

469.990 kr

Error

Netfang móttekið

Takk fyrir að hafa samband. Við munum hafa samband um leið og varan er aftur fáanleg.

Væntanleg

Mac Studio M5 er væntanleg í verslanir 30. september.

Veldu þína tegund

Hvar fæst varan?

• Laugavegur

• Smáralind

• Vefverslun

Þú gætir haft áhuga á

Afköst
Veldu þinn
ofurkraft.

Mac Studio er fullkomin borðtölva fyrir fagfólk, knúin af M5 Max og M5 Ultra. Með ótrúlegri grafík, hraðara minni og geymslu og áður óþekktri gervigreindargetu opnar Mac Studio dyrnar að alveg nýjum möguleikum.

Apple M5 Max chip
18-core CPU
Allt að 40-core GPU
Allt að 128GB unified memory
Allt að 614GB/s
minnisbandvídd
16-core Neural Engine
Apple M5 Ultra chip
Allt að 36-core CPU
Allt að 80-core GPU
Allt að 512GB unified memory
1.2TB/s
minnisbandvídd
32-core Neural Engine
M5 Max

Hannað fyrir skapandi fagfólk, forritara, verkfræðinga og aðra sérfræðinga. M5 Max skilar einstökum afköstum og öflugri gervigreindarvinnslu beint í tækinu. Klipptu háupplausnar RAW-myndaraðir, keyrðu saman risastóran kóða, skapaðu með þrívídd og hreyfigrafík í rauntíma og keyrðu stór mállíkön beint á Mac Studio.

LLM-fyrirmælavinnsla

LLM-fyrirmælavinnsla

Fljótari svörun í LM Studio.

Gervigreindarþjálfun

Gervigreindarþjálfun

Hraðari CopyCat ML þjálfun í Foundry Nuke.

Vídeó vinnsla

Vídeó vinnsla

Hraðari Magic Mask-vinnsla í Blackmagic DaVinci Resolve Studio.

DNA-raðgreining

DNA-raðgreining

Hraðari basaköllun í Oxford Nanopore MinKNOW.

Myndsköpun með gervigreind

Myndsköpun með gervigreind

Hraðari texta-í-mynd vinnsla.

3D-hönnun

3D-hönnun

Hraðari 3D vinnsla Redshift.

Smíði ókða

Smíði ókða

Hraðari verkefnasmíði í Xcode.

Leikjaspilun

Leikjaspilun

Betri leikjaspilun með geislarakningu í Cyberpunk 2077: Ultimate Edition.

M5 Ultra

M5 Ultra sameinar tvær M5 Max-flögur í eina öfluga SoC-flögu og skilar þannig öflugasta GPU í sögu Apple silicon, fleiri örgjörvakjörnum en nokkur annar Mac og öflugustu gervigreindarvinnslu sem Apple hefur boðið upp á. Litaleiðréttu óþjappað 8K-myndband, framkvæmdu flókna straumfræðiútreikninga og keyrðu háþróuð gervigreindarlíkön beint á tækinu – án þess að þurfa skýjaþjónustu.

LLM-fyrirmælavinnsla

LLM-fyrirmælavinnsla

Fljótari svörun í LM Studio.

Gervigreindarþjálfun

Gervigreindarþjálfun

Hraðari CopyCat ML þjálfun í Foundry Nuke.

DNA-raðgreining

DNA-raðgreining

Hraðari basaköllun í Oxford Nanopore MinKNOW.

Myndsköpun með gervigreind

Myndsköpun með gervigreind

Hraðari texta-í-mynd vinnsla.

3D-hönnun

3D-hönnun

Hraðari 3D vinnsla Redshift.

Smíði kóða

Smíði kóða

Hraðari verkefnasmíði í Xcode.

Leikjaspilun

Leikjaspilun

Betri leikjaspilun með geislarakningu í Cyberpunk 2077: Ultimate Edition.

Gervigreind
Meistari
álagsins.

Apple silicon og allir helstu íhlutirnir sem knýja hann áfram eru hannaðir með gervigreind í huga. Þannig verður til öflugur vettvangur þar sem vélbúnaður, hugbúnaður og vistkerfi vinna saman sem ein heild. Þú getur því keyrt krefjandi gervigreindarverkefni beint á tækinu með ótrúlegri orkunýtni. Og eins og alltaf er öryggi og friðhelgi einkalífsins innbyggt frá grunni – ekki bætt við eftir á.

Gervigreindarforrit

Gervigreindarforrit

Draw Things-forritið, sýnt ásamt Keynote og Pages.

Mac Studio er hannaður til að takast á við fullkomnustu gervigreindarforritin. Keyrðu stór mállíkön (LLM) á staðnum með LM Studio Bionic. Búðu til glæsilegar myndir í Draw Things. Og notaðu exo til að tengja saman margar gervigreindarvinnustöðvar í einn klasa.

Gervigreindarlíkön

Gervigreindarlíkön

LM Studio Bionic (Inkling-Small-líkanið) og MATLAB

Keyrðu fullkomnustu gervigreindarlíkönin alfarið á tækinu. Keyrðu stór mállíkön (LLM) á borð við Gemma, Kimi og Mistral. Búðu til myndir með Stable Diffusion og FLUX. Og notaðu líkön til að byggja upp sjálfvirkt verkflæði með gervigreindarboðberum, allt frá upphafi til enda og beint á tækinu.

Gervigreindareiginleikar í forritum

Gervigreindareiginleikar í forritum

Claude Agent í Xcode

Veldu nákvæmlega það myndefni sem þú vilt á örfáum sekúndum með Magic Mask í DaVinci Resolve. Einfaldaðu rotoscoping á flóknum senum með Roto Brush-verkfærinu í Adobe After Effects. Og nýttu þér kóðunarboðbera og gervigreindarlíkön, þar á meðal líkön sem keyra á tækinu, til að auka afköst og framleiðni í Xcode.

Apple Intelligence og Siri-AI. Persónulegri. Öflugri.
Siri-AI kemur á ensku síðar á þessu ári.

Apple Intelligence hjálpar þér að skrifa, tjá þig og koma hlutunum í verk áreynslulaust. Breyttu glósum í dagskrá fyrir sprett, finndu gamalt myndvinnsluverkefni með því einu að lýsa atriðinu eða notaðu Visual Intelligence til að fá upplýsingar um tökustað. Og Siri-gervigreind er gagnlegri en nokkru sinni fyrr, með ítarlegri svörum, eðlilegri samtölum og sérstöku appi.

Siri AI. Alveg ný útgáfa af Siri, knúin af Apple Intelligence. Hún er mun persónulegri og öflugri aðstoðarmaður, auk þess að eiga mun eðlilegri samtöl, með nýja Siri-appinu. Þú getur einnig skrifað og breytt texta með Siri nánast hvar sem þú getur slegið inn texta og notað Visual Intelligence með Siri til að fá upplýsingar um það sem er fyrir framan þig.
Lýstu flýtileið. Sjálfvirknivæddu dagleg verkefni með einfaldri lýsingu. Lýstu einfaldlega því sem þú þarft að gera og Shortcuts forritið tengir saman aðgerðir í mörgum öppum til að klára verkið.
Safari. Þú getur sjálfkrafa flokkað flipa eftir efnisflokkum, svo auðveldara sé að finna síður sem tengjast hvor annarri. Safari Notify Me fylgist með breytingum á vefsíðum — til dæmis þegar nýjar hugbúnaðarútgáfur koma út — og lætur þig vita þegar kominn er tími til að bregðast við.
Hönnun

Hönnun

Stærðin segir
ekki alla söguna.
Smellpassar.
Mac Studio býður upp á gríðarlega afköst í ótrúlega litlu formi. Hún er hönnuð til að passa fullkomlega undir flesta skjái og færir þér gríðarlegt afl og fjölbreytta tengimöguleika innan seilingar.
Mikill kraftur. Lítill hávaði.
Innbyggt háþróað kælikerfi sem gerir Mac Studio kleift að takast á við krefjandi verkefni á leifturhraða. Þrátt fyrir allan þennan kraft er hún einstaklega hljóðlát, svo þú getur unnið að myndbandsvinnslu í stórum skömmtum eða kóðunarverkefnum án þess að einbeitingin þín raskist.

Tengi og tengimöguleikar

Tilbúin að tengja

og byrja.

Tengi og tengimöguleikar
Tilbúin að tengja
og byrja.

Skapaðu vinnustofuna sem þig hefur alltaf dreymt um með fjölbreyttu úrvali háhraðatengja. Með allt að 120 Gb/s flutningshraða ræður Thunderbolt 5 við allt frá háhraða ytri geymslum og samstillingu myndbands með Genlock til keðjutengingar margra skjáa. Mac Studio styður einnig PCIe-viðbætur með ytri hýsingu. Nú styður hann einnig bæði Wi-Fi 7 og Bluetooth 6.

Styður að tengja fleiri tölvur saman sem getur gert dreifða ályktun gervigreindarlíkana allt að þrisvar sinnum hraðari.
PCIe
Thunderbolt 5 gerir kleift að bæta við háhraða PCI Express-tengingum með ytri hýsingu.
2x USB-C eða Thunderbolt 5
1x SDXC
10Gb Ethernet
4x Thunderbolt 5
1x HDMI
2x USB-A
Skjáir

Skjáir

Fullkomin samsetning.
Bættu við Studio Display og sjáðu verkin þín lifna við með stórkostlegum litum og ótrúlegum smáatriðum, eða tengdu við Studio Display XDR fyrir hámarks nákvæmni. Báðir skjáirnir eru með myndavél, hljóðnemum, hátölurum og Thunderbolt 5, svo þú getur allt frá því að streyma í beinni til að stækka uppsetninguna þína með enn fleiri tengimöguleikum. Hvort sem þú velur verður útkoman glæsileg.
Nýttu vinnurýmið til fulls.

Með einstaklega fyrirferðarlitlu sniði og fjölbreyttu úrvali tengja gefur Mac Studio þér frelsi til að endurhugsa vinnuaðstöðuna þína og gefa sköpunargáfunni lausan tauminn.

x8

Tengdu allt að átta skjái við M5 Ultra eða allt að fimm skjái við M5 Max.

Mac Studio on a desk with dual displays and Magic accessories
Aukahlutir
Fullkomnaðu
vinnuaðstöðuna þína.
Magic Keyboard and Magic Mouse

Magic-fylgihlutirnir eru þráðlausir, endurhlaðanlegir og nákvæmir og hannaðir til að vinna hnökralaust saman. Taktu sköpunina á næsta stig með því að bæta við Magic Mouse, Magic Trackpad eða Magic Keyboard með Touch ID.

Touch ID
Magic Keyboard with Touch ID
Magic Trackpad
Magic Trackpad

macOS
Láttu forritin þín njóta sín.

macOS er hannað til að nýta til fulls hina ótrúlegu grafíkgetu, minnisgetu og vélræna námshæfni Apple-sílikons. Veldu úr tugþúsundum forrita sem eru sérhönnuð og fínstillt fyrir Apple-sílikon — þar á meðal öflug forrit með innbyggðri gervigreind á borð við Final Cut Pro, DaVinci Resolve og Adobe Photoshop. Fáðu aðgang að þeim forritum sem þú þarft fyrir allt sem þú vilt skapa, í einni einfaldri áskrift með Apple Creator Studio.

Það hefur aldrei verið betri
tími til þess að uppfæra.
Hér er það sem þú færð með nýja Mac Studio með M5 Max.
Allt að
2.5x hraðari
fjölþráða afköst örgjörva fyrir krefjandi vinnuferla.
Allt að 128 GB sameinað minni með 50% meiri minnisbandbreidd.
Allt að 3× meiri I/O-bandbreidd með Thunderbolt 5 og allt að 120 Gb/s flutningshraði.
Allt að
13.5x hraðari
með LLM gervigreindarvinnslu.
Epli

Uppítaka.

Skilaðu inn gjaldgengu tæki og fáðu inneign sem þú getur notað til að kaupa nýja Apple vöru.

Reiknaðu dæmið

Vara

Mac Studio M5

Heildarverð

469.990 kr

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: