Hvernig á að endurstilla AirPods, AirPods Pro og AirPods Max
Þú gætir þurft að endurstilla AirPods-in þín ef þau hlaðast ekki eða til að laga annað vandamál.
Endurstilltu AirPods 1, AirPods 2, AirPods 3, AirPods Pro 1 eða AirPods Pro 2
-
Settu AirPods-in þín í hleðsluhulstrið, lokaðu því og bíddu í 30 sekúndur.
-
Á iPhone eða iPad sem er parað við AirPods-in þín, farðu í Stillingar > Bluetooth:
Ef AirPods-in þín birtast á listanum yfir tækin þín, ýttu á hnappinn Frekari upplýsingar við hliðina á AirPods-unum þínum, ýttu á Gleyma þessu tæki og staðfestu svo með því að ýta aftur.
Ef AirPods-in þín birtast ekki á listanum, haltu áfram á næsta skref. -
Opnaðu lokið á hleðsluhulstrinu.
-
Ýttu á og haltu inni uppsetningarhnappnum aftan á hulstrinu í um 15 sekúndur.
-
Þegar stöðuljósið framan á hulstrinu blikkar gult og síðan hvítt, geturðu fylgt skrefunum á skjá tækisins þíns til að tengja AirPods-in þín aftur.
Endurstilltu AirPods 4 (allar gerðir)
-
Settu AirPods-in þín í hleðsluhulsturið, lokaðu lokinu og bíddu í 30 sekúndur.
-
Á iPhone eða iPad sem er parað við AirPods-in þín, farðu í Stillingar > Bluetooth:
Ef AirPods-in þín birtast á listanum yfir Tækin mín, ýttu á hnappinn Frekari upplýsingar við hliðina á AirPods-unum þínum, ýttu á Gleyma þessu tæki og staðfestu svo með því að ýta aftur.
Ef AirPods-in þín birtast ekki á listanum, haltu áfram á næsta skref. -
Opnaðu lokið á hleðsluhulstrinu.
-
Tvíbankaðu á framhlið hulsturins á meðan stöðuljósið er kveikt.
-
Tvíbankaðu aftur þegar stöðuljósið blikkar hvítt.
-
Tvíbankaðu í þriðja sinn þegar stöðuljósið blikkar hraðar.
-
Þegar stöðuljósið blikkar gult og síðan hvítt, geturðu fylgt skrefunum á skjá tækisins þíns til að tengja AirPods-in þín aftur.
Ef stöðuljósið blikkar ekki hvítt þegar þú endurstillir AirPods-in þín
-
Settu AirPods-in í hleðsluhulsturið og lokaðu lokinu í 20 sekúndur.
-
Opnaðu lokið á hleðsluhulstrinu.
-
Eftir því hvaða gerð af AirPods þú ert með:
Fyrir AirPods 1, AirPods 2, AirPods 3, AirPods Pro 1 eða AirPods Pro 2, ýttu á og haltu inni uppsetningarhnappnum á hulstrinu aftur í um 15 sekúndur, þar til stöðuljósið framan á hulstrinu blikkar gult og síðan hvítt.
Fyrir AirPods 4 gerðir, tvíbankaðu á framhlið hulsturins á meðan stöðuljósið er kveikt, tvíbankaðu aftur þegar stöðuljósið blikkar hvítt. Þegar stöðuljósið blikkar hraðar, tvíbankaðu í þriðja sinn, þar til stöðuljósið blikkar gult og síðan hvítt. -
Til að tengja AirPods-in þín aftur: Með AirPods-in í hleðsluhulstrinu og lokið opið, settu AirPods-in nálægt tækinu þínu og fylgdu svo skrefunum á skjá tækisins.
Endurræsa AirPods Max
Ef þú lendir í vandræðum með AirPods Max heyrnartólin þín geturðu endurræst þau. Ýttu á og haltu inni hljóðstýringarhnappnum og Digital Crown hjólinu þar til LED ljósið blikkar gult.
Endurstilla AirPods Max
Ef AirPods Max heyrnartólin þín hlaðast ekki eða endurræsing leysir ekki vandamálið skaltu endurstilla þau í verksmiðjustillingar: Ýttu á og haltu inni hljóðstýringarhnappnum og Digital Crown hjólinu í 15 sekúndur þar til LED ljósið blikkar gult og síðan hvítt.
Eftir að þú endurstillir AirPods Max heyrnartólin þín skaltu tengja þau við iOS eða iPadOS tækið þitt, eða tengja þau við Mac tölvuna þína eða annað tæki.
AirPods Max heyrnartól geta verið tengd við einn Apple reikning. Ef þú vilt nota AirPods Max sem einhver annar hefur notað þarf viðkomandi fyrst að fjarlægja þau úr sínum Apple reikningi.
Fyrirmyndir greinar sóttar á vef Apple 13. maí 2025.
AirPods
AirPods Max