Hvernig hægt er að eyða öllum gögnum á tæki
Lærðu hvernig á að eyða öllum gögnum og setja tækið aftur á verksmiðjustillingar.
Ef þú þarft líka að hreinsa gögn af Apple Watch getur þú fylgt þessum skrefum til að aftengja tækin þín.
Veldu Settings > General > Reset
Veldu svo Erase All Content and Settings.
Stimplaðu inn aðgangskóðann þinn (e. passcode) og/eða Apple ID lykilorðið þitt ef þú ert beðin/n um það
Staðfestu svo að þú viljir eyða öllum gögnum með því að velja Erase.
Bíddu á meðan gögnunum er eytt
Það gæti tekið nokkrar mínútur að eyða gögnum og endurstilla tækið.
Ef þú getur ekki hreinsað gögnin
- Ef þú manst ekki aðgangskóðann eða tækið þitt er óvirkt (e. disabled), skaltu fylgja eftirfarandi leiðbeiningum.
- Ef þú gleymir Screen Time kóðanum þarftu að hreinsa tækið í gegnum tölvuna hjá þér. Ef þú setur inn afrit (e. backup) mun það ekki leysa vandann. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að leysa vandann.
Frekari aðstoð
Ef þú þarft á frekari aðstoð að halda getur þú fengið viðurkenndan tæknimann til að hjálpa þér samkvæmt gildandi verðskrá.
Útgáfudagur: 7. júní 2019