Leiðbeiningar fyrir Apple Account

Leiðbeiningar fyrir Apple Account

Breyta lykilorði á Apple Account

Lærðu hvernig þú getur notað traust tæki til að breyta lykilorði Apple-reikningsins þíns eða Apple-reiknings barns.

Apple ID heitir nú Apple Account. Þú getur áfram skráð þig inn með sama netfangi eða símanúmeri og sama lykilorði og áður.

    1. Opnaðu Settings og ýttu síðan á nafnið þitt.
    2. Ýttu á Sign-In & Security.
    3. Ýttu á Change Password.
      iPhone showing Change Password button in settings.
    4. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að breyta lykilorðinu.

    Ef þú ert skráð(ur) inn á Apple-reikninginn þinn í fleiri en einu tæki geturðu valið hvort þú vilt halda innskráningu á öllum tækjunum.

    • Ýttu á Remove Other Devices ef þú vilt að þú þurfir að skrá þig inn aftur á hinum tækjunum.
    • Ýttu á Keep All Devices Signed In ef þú vilt halda innskráningu á öllum tækjunum.

    Þú gætir þurft að bíða í eina klukkustund áður en þú getur breytt lykilorði Apple-reikningsins. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um Stolen Device Protection og hvenær öryggisbið getur verið nauðsynleg.

     

    1. Veldu Apple menu  og síðan System Settings.
    2. Smelltu á nafnið þitt og síðan á Sign-In & Security.
    3. Smelltu á Change Password.
    4. Sláðu inn lykilorðið sem þú notar til að aflæsa Mac-tölvunni. Fylgdu síðan leiðbeiningunum á skjánum til að breyta lykilorði Apple-reikningsins.
      Mac showing Apple Account sign-in and security settings.

    Þú gætir þurft að bíða í eina klukkustund áður en þú getur breytt lykilorði Apple-reikningsins. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um Stolen Device Protection og hvenær öryggisbið getur verið nauðsynleg.

  • Vefsvæði Apple-reikningsins vísar þér yfirleitt á traust tæki til að hafa umsjón með reikningnum, ef þess er kostur. Ef þú hefur ekki aðgang að traustu tæki getur verið mögulegt að breyta lykilorðinu á vefnum.

    1. Farðu á account.apple.com og skráðu þig inn á Apple-reikninginn þinn.
    2. Opnaðu Sign-In and Security.
    3. Veldu Password.
    1. Opnaðu Settings og ýttu síðan á Family.
    2. Veldu reikning barnsins.
    3. Ýttu á Change [nafn barns] Password.

    Ef kveikt er á skjátímastillingum (Screen Time) fyrir barnareikninginn gætirðu þurft að velja Personal Information áður en þú ýtir á Change [nafn barns] Password.

    1. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að breyta lykilorði Apple-reiknings barnsins.

    Þú getur einnig breytt lykilorði Apple-reiknings barnsins í Settings á tæki barnsins sjálfs.

  • Ef þú hefur gleymt lykilorðinu skaltu kynna þér hvernig þú getur endurheimt aðgang að reikningnum þínum.

Fyrirmynd greinar sótt frá Apple 16. október 2026

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: