Leiðbeiningar fyrir Apple Account

Leiðbeiningar fyrir Apple Account

Á meðan endurheimt Apple-reiknings stendur yfir

Endurheimt reiknings hjálpar þér að fá aftur aðgang að Apple-reikningnum þínum þegar þú getur ekki endurstillt lykilorðið þitt með öðrum hætti. Hér geturðu lesið við hverju þú mátt búast meðan þú bíður, hvernig þú fylgist með stöðu beiðninnar og hvað þú ættir að gera – og forðast að gera – á meðan. 

Apple Support getur ekki stytt biðtímann.

Ef þú hefur ekki hafið endurheimt reikningsins skaltu fyrst reyna að breyta eða endurstilla lykilorðið til að fá aftur aðgang að reikningnum þínum. Leiðbeiningar hér.

  • Staðfestingarpóstur

    Þú færð staðfestingarpóst (eða skilaboð í iMessage ef reikningurinn er eingöngu tengdur símanúmeri) þar sem fram kemur nákvæm dagsetning og tími þegar þú ættir að geta fengið aftur aðgang að Apple-reikningnum þínum. Pósturinn berst innan 72 klukkustunda frá því að þú hefur beiðni um endurheimt reiknings.

    Biðtími

    Af öryggisástæðum getur endurheimt reiknings tekið nokkra daga eða jafnvel lengri tíma. Þessi bið getur verið óþægileg, en hún er mikilvæg til að Apple geti verndað reikninginn þinn og upplýsingarnar sem honum tengjast.

    Það hefur ekki áhrif á biðtímann þótt þú hafir samband við Apple Support, því þjónustan getur ekki stytt hann.

    Tilkynning þegar hægt er að fá aftur aðgang að reikningnum

    Þegar reikningurinn er tilbúinn til endurheimtar sendir Apple þér tölvupóst og hefur samband við þig með textaskilaboðum eða sjálfvirku símtali í símanúmerið sem þú notaðir þegar þú hófst handa við endurheimtina. Í tilkynningunni færðu leiðbeiningar um næstu skref.

  • Nokkur atriði geta truflað eða fellt niður beiðnina um endurheimt.

    • Ekki hafa samband við Apple Support í von um að stytta biðtímann. Apple Support getur ekki stytt hann, enda er biðtíminn fyrirfram ákveðinn.
    • Ekki senda inn aðra beiðni. Nema þú hafir aðgang að viðbótarupplýsingum eða öðrum leiðum til að staðfesta auðkenni þitt mun ný beiðni ekki flýta ferlinu og gæti jafnvel lengt biðtímann.
    • Ef þú hófst endurheimt reiknings í tæki með iOS 17, iPadOS 17 eða macOS 27 eða nýrra geturðu haldið áfram að nota tækið sem þú notaðir til að hefja endurheimtina.
    • Ef þú hófst endurheimtina á vefnum skaltu slökkva á öllum Apple-tækjunum þínum meðan á biðinni stendur.
    • Ef þú átt annað Apple-tæki þar sem þú ert þegar skráð(ur) inn á Apple-reikninginn þinn geturðu breytt lykilorðinu á því tæki. Þá fellur beiðnin um endurheimt niður og þú getur fengið aðgang að reikningnum með nýja lykilorðinu.
    • Ef þú getur ekki breytt lykilorðinu í hinu tækinu, til dæmis vegna þess að þú hefur gleymt aðgangskóðanum að því, skaltu slökkva á tækinu. Ef þú notar Apple-tæki þar sem þú ert skráð(ur) inn á reikninginn þinn fellur beiðnin um endurheimt niður.
  • Bíddu í heilar 72 klukkustundir frá því að þú hófst endurheimtina. Athugaðu síðan ruslpóstsmöppuna í tölvupóstinum þínum.

    Ef þú finnur póstinn ekki skaltu fara á iforgot.apple.com og athuga hvort beiðnin sé enn virk.

    • Ef beiðnin er virk: Á vefsíðunni geturðu séð hvenær áætlað er að endurheimtinni ljúki. Hugsanlegt er að tölvupósturinn hafi tafist.
    • Ef beiðnin er ekki virk: Hugsanlegt er að hún hafi ekki verið send inn með réttum hætti eða að hún hafi verið felld niður. Það getur til dæmis gerst ef þú notaðir tæki þar sem þú ert skráð(ur) inn á Apple-reikninginn þinn meðan á biðinni stóð. Þú getur þá sent inn nýja beiðni og hafið ferlið að nýju.
  • Skoðaðu staðfestingarpóstinn til að sjá hvenær áætlað er að endurheimtinni ljúki eða hvenær frekari upplýsingar verða aðgengilegar.

    • Þú getur einnig fylgst með stöðunni á iforgot.apple.com
    • Gættu þess að slá inn sömu upplýsingar og þú notaðir þegar þú sendir inn beiðnina, þar á meðal sama netfang og símanúmer. Annars gæti biðtíminn lengst.
  • Apple sendir þér tölvupóst og hefur samband við þig með textaskilaboðum eða sjálfvirku símtali í símanúmerið sem þú notaðir þegar þú hófst handa við endurheimtina. Þú færð þá leiðbeiningar um hvernig þú færð aftur aðgang að reikningnum þínum.

    Ef þú færð hvorki textaskilaboð né símtal geturðu farið beint á apple.com/recover þegar sá tími er liðinn sem tilgreindur er í staðfestingarpóstinum.

  • Ef þú manst lykilorðið þitt og tekst að skrá þig inn fellur beiðnin um endurheimt sjálfkrafa niður. Þá geturðu notað Apple-reikninginn þinn á ný þegar í stað.

    Ef þú baðst ekki sjálf(ur) um endurheimt reikningsins gæti einhver annar verið að reyna að fá aðgang að honum. Notaðu þá strax tengilinn í staðfestingarpóstinum til að hætta við endurheimtina. Íhugaðu einnig að breyta lykilorðinu þínu og fara yfir öryggisstillingar reikningsins til að tryggja að hann sé öruggur.

Fyrirmynd greinar sótt frá Apple 19. október 2026

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: