Helstu eiginleikar

• Apple M5 flaga
• 10-Core CPU
• 10-Core GPU
• 16GB vinnsluminni
• 512GB SSD
• 16-Core Neural Engine
• 15,3" Liquid Retina skjár
• 1080p FaceTime Camera
• 2x Thunderbolt/USB4 tengi
• Magic lyklaborð með Touch ID
• Force Touch trackpad
• 35W Dual USB-C í MagSafe 3 hleðsla (Selt sér)

Z1LQ

Nýtt
Verðlækkun

MacBook Air 15" M5

259.990 kr

Litur

  • Silfur

  • Ljósgull

  • Svarblár

  • Himinblár

Veldu þína tegund

Hvar fæst varan?

  • Laugavegur

  • Smáralind

  • Vefverslun

Skiptu gömlu tölvunni upp í nýja

Endurnýtum saman. Við metum gamla tækið þitt upp í nýtt og endurnýtum það þér að kostnaðarlausu.

Reiknaðu dæmið

Þú gætir haft áhuga á

<div>
<p style="font-size: 32px; line-height: 1.125; font-weight: 600; letter-spacing: 0.004em; font-family: SF Pro Display, SF Pro Icons, Helvetica Neue, Helvetica, Arial, sans-serif; color: #1d1d1f;">MacBook Air</p>
<p style="background-image: linear-gradient(90deg, #022640, #5786AB); -webkit-background-clip: text; -webkit-text-fill-color: transparent; font-weight: 600; font-size: 56px; line-height: 1.0714285714; letter-spacing: 0em; font-family: SF Pro Display, SF Pro Icons, Helvetica Neue, Helvetica, Arial, sans-serif; margin: 0; z-index: 100;">Stígandi kraftur.</p>
<p style="color: #bf4800; font-weight: 600; font-size: 17px; line-height: 1.25; letter-spacing: 0.004em; font-family: SF Pro Display, SF Pro Icons, Helvetica Neue, Helvetica, Arial, sans-serif; margin: 0;"><br />Væntanleg með ofurkröftum frá M5.</p>
</div>

MacBook Air

Stígandi kraftur.


Væntanleg með ofurkröftum frá M5.

Sjáðu hápunktana.

M5-flagan er ekki bara uppfærsla. Hún breytir öllu og skilar ótrúlegum afköstum fyrir stór verkefni. Búðu þig undir flugtak.

Allt að 18 tíma rafhlöðuending. Gefst ekki upp fyrr en þú gerir það.

Öflugur grunnur fyrir gervigreind. Og innbyggt Apple Intelligence. Snjallt, með öðrum orðum.

512 GB geymslupláss og 16 GB sameiginlegt minni. Leifturhröð frá fyrstu stundu.

macOS Tahoe er með glæsilega nýja Liquid Glass-hönnun, leiðandi framleiðniverkfæri og endurbætt Spotlight. Allt gengur eins og í sögu.

Með öflugum samfellueiginleikum vinna Apple-tækin þín óaðfinnanlega saman, svo þú getir gert hlutina hraðar og á skilvirkari hátt.

Hönnun

Sköpuð fyrir líf á ferðinni.

MacBook Air er ótrúlega létt, vegur aðeins 1,23 kg og er rúmlega sentimetri á þykkt. Hún er hönnuð til að passa í töskuna þína svo þú getir alltaf tekið hana með þér. Auk þess er hún framleidd úr yfir 50% endurunnu efni og er með harðgerða álumgjörð sem þolir daglega notkun.

13"
skjár
15"
skjár

Létt fartölva í tveimur stærðum. 13 tommu MacBook Air er fullkomin fartölva þegar þú ert á ferðinni og 15 tommu útgáfan gefur þér enn meira pláss á skjánum fyrir fjölverkavinnslu.

Fjórir glæsilegir litir til að velja úr. Falleg MagSafe-hleðslusnúra í stíl fylgir með.

MacBook Air er fislétt og þunn, svo hún tekur lítið pláss í bakpokanum.

Með allt að 18 klukkustunda rafhlöðuendingu er MacBook Air fullkomin fyrir langar vinnutarnir.

Hágæða skjárinn gerir það að verkum að sjónvarpsþættir, kvikmyndir og leikir líta virkilega vel út.

Afköst

M5. Ofurhröð. Megaskilvirk.

M5-flagan er með næstu kynslóðar 10 kjarna skjákjarna með öflugum nýjum Neural Accelerator í hverjum kjarna og 10 kjarna örgjörva með fjölþráða afköstum. Kröfuhörð forrit eins og Microsoft 365 Copilot og Adobe Creative Cloud bregðast leifturhratt við hverri einustu skipun, svo þú getur unnið afkastamikið allan daginn á einni hleðslu.

M5-flagan í MacBook Air gerir það að verkum að grafík og leikir líta betur út en nokkru sinni fyrr. Með þriðju kynslóðar hardware-accelerated ray tracing verður myndefni í yfirgripsmiklum leikjum raunverulegra. Og kraftmikil skyndiminni veitir gríðarlega aukningu í afköstum fyrir kröfuhörðustu forritin og leikina. Þannig verður allt sem þú gerir minna strit og miklu skemmtilegra.

Löng og farsæl rafhlöðuending. MacBook Air er með allt að 18 klukkustunda rafhlöðuendingu. Og hún styður hraðhleðslu, svo þú getur hlaðið hana í 50 prósent á aðeins 30 mínútum. Þannig hefurðu næga rafhlöðu fyrir vinnu og nám – og getur endað daginn á kvikmyndakvöldi án þess að hafa áhyggjur af því að verða rafmagnslaus.

Allt að
18 klst.
rafhlöðuending

macOS

Öflugt stýrikerfi.

macOS er hannað til að styðja við það hvernig þú vinnur, skapar og hefur samskipti, með háþróuðum öppum og hnökralausri fjölverkavinnslu.

Fljótgert með Spotlight. Þú getur framkvæmt hundruð mismunandi aðgerða í Spotlight á MacBook Air, allt frá því að finna skrár og öpp til að senda skilaboð í snatri.

Liquid Glass. Skýr innblástur. Glæsileg ný Liquid Glass-hönnun gerir yfirlit og stjórntæki skýrari – og gefur þér enn fleiri leiðir til að sérsníða notendaupplifunina. Gefðu app-táknum ljóst eða dökkt útlit, eða gefðu þeim aðlaðandi, hálfgegnsæjan stíl.

Það sem þú þarft, nákvæmlega þar sem þú þarft það. Stjórntækin sem þú notar mest, eins og stjórntæki fyrir gluggaskiptingu, skjámyndir og flýtileiðir að uppáhaldsöppunum þínum, er hægt að setja inn og sérsníða í Stjórnstöð. Hálfgegnsæ hönnunin heldur skjánum snyrtilegum.

Samvirkni

Enn betri saman.

Mac og iPhone eru frábær hvort í sínu lagi. En þegar þú notar þau saman geta þau gert ótrúlegustu hluti. Þökk sé samvirkni eiginleikum geturðu skipt óaðfinnanlega á milli tækja til að deila skrám og myndum, flytja verkefni og jafnvel nota iPhone úr Mac tölvunni.

Svaraðu símtölum og skilaboðum. Símtöl og skilaboð koma beint í tölvuna – svo þú þarft ekki að skipta á milli tækja þegar þú ert á fullu í einhverju.

Alhliða klippispjald. Afritaðu myndir, myndskeið eða texta úr öppum á iPhone eða iPad. Síðan geturðu límt það inn í annað app á Mac tölvunni – eða öfugt.

iPhone-speglun. Allt efnið á iPhone getur birst og verið notað á Mac tölvunni – jafnvel þegar þú ert að hlaða símann í öðru herbergi. Og iPhone er áfram læstur, svo enginn annar fær aðgang að honum eða sér hvað þú ert að gera.

Uppfærslur í rauntíma. Þú þarft ekki lengur að hafa símann í hendinni til að fylgjast með. Nú birtast rauntímauppfærslur frá iPhone líka á Mac tölvunni – til dæmis þegar Wolt sendingin þín er rétt handan við hornið.

Merking og teikning. Skrifaðu undir skjöl, bættu við athugasemdum og teiknaðu skissur á iPad eða iPhone. Uppfærslurnar birtast í rauntíma líka á Mac tölvunni, svo þú getur auðveldlega sett þær inn í alls kyns skjöl.

Ekki notað Mac áður?

Uppsetning er ofureinföld. Með Flutningsaðstoð er auðvelt að flytja skrár, öpp og fleira úr gamalli PC eða Mac tölvu. Það er líka einfalt að setja upp Mac tölvuna með hjálp iPhone eða iPad og Setup Assistant á Mac.

Fáðu aðgang að skrám alls staðar með iCloud. Með iCloud geturðu geymt allar myndirnar þínar, tengiliði og skjöl, svo þau verði aðgengileg í öllum tækjunum þínum. Byrjaðu á minnislista á iPhone og merktu verkefnin sem lokið á MacBook Air – og margt fleira.

Full af frábærum öppum. Mac kemur með öppum eins og FaceTime, Freeform og Keynote, sem þú getur notað til að skapa næstu stóru hugmynd þína og bjóða til samstarfs.

Mac er byggður til að endast. Umgjörðirnar á Mac fartölvum eru gerðar úr endurunnu áli, svo þær eru tilbúnar í nánast hvað sem er. Og ókeypis macOS uppfærslur hjálpa til við að halda Mac tölvunni þinni áreiðanlegri og öruggri um ókomin ár.

Aldrei notað Mac áður? Ekkert mál. Það er fljótlegt og auðvelt að skipta yfir í Mac úr PC.

Kynntu þér málið nánar.

Skjár

Falleg sjón. Hvað sem á dynur.

Liquid Retina-skjárinn á MacBook Air styður milljarð lita og býður upp á alveg stórfenglega upplausn. Myndir og myndskeið birtast með mikilli skerpu og skýrum smáatriðum og texti verður hárbeittur.



500 nita birta. Vinndu þægilega við margvísleg birtuskilyrði.



Stórt litasvið (P3). Fáðu nákvæma og líflega liti þegar þú skoðar og breytir myndum og myndskeiðum.



True Tone-tækni. True Tone stillir litahitastig skjásins til að passa við umhverfisljósið, sem gefur náttúrulegri upplifun.

Myndavél og hljóð

Hreyfist með þér.

Center Stage. Miðjun heldur þér í miðjum rammanum í myndsímtölum, jafnvel þegar þú hreyfir þig eða fleiri bætast við í myndina.

Desk View. Með borðsýn geturðu deilt vinnusvæðinu þínu, sem gefur myndsímtölunum þínum alveg nýja vídd og gerir þau meira aðlaðandi.



Þrír hljóðnemar. MacBook Air tryggir betri raddskýrleika í hljóð- og myndsímtölum og lágmarkar um leið bakgrunnshljóð.



Yfirgripsmikið hljóðkerfi. Hátalararnir í MacBook Air styðja rýmishljóð og Dolby Atmos svo þú getir notið þrívíddarhljóðmynda þegar þú hlustar á tónlist eða horfir á kvikmyndir.

Tengi og tengimöguleikar

Góðar tengingar.

MagSafe-hleðslusnúran festist með seglum og losnar auðveldlega til að koma í veg fyrir óhöpp. Með tveimur Thunderbolt 4-tengjum geturðu tengt hraðvirkan aukabúnað og hlaðið Mac-tölvuna. Heyrnartólatengið styður heyrnartól með háu viðnámi. Og Apple N1-kubburinn fyrir þráðlausar tengingar styður Wi‑Fi 7 og Bluetooth 6, sem skilar betri afköstum og áreiðanleika.

Búðu til hið fullkomna vinnusvæði með MacBook Air með því að nota allt að tvo ytri skjái, eins og Studio Display. Með meira skjáplássi verður leikur einn að vinna með mörg skjöl eða öpp.

Öryggi

Hugarró við
fingurgóma.

Touch ID á Magic Keyboard gerir þér kleift að aflæsa Mac tölvunni þinni, skrá þig inn á reikninga og heimila greiðslur á fljótlegan, auðveldan og öruggan hátt. Innbyggð, leiðandi dulkóðun, öflug vírusvörn og ókeypis, sjálfvirkar öryggisuppfærslur hjálpa til við að halda gögnunum þínum öruggum.

Mac + iPhone

Ef þú elskar iPhone, þá muntu ❤️ Mac.


Mac er hannaður til að vera jafn auðveldur í notkun og iPhone. Og þegar þú notar Mac og iPhone - sem og önnur Apple tæki - saman, getur þú gert ótrúlega hluti. Hér eru nokkur dæmi:

Sjáðu og notaðu iPhone á Mac með iPhone Mirroring. Sendu og taktu á móti SMS skilaboðum á Mac með iMessage. Afritaðu texta og myndir úr iPhone yfir á Mac með Universal Clipboard. Skoðaðu myndir sem þú tekur á iPhone samstundis á Mac með Continuity Camera. Deildu nettengingu úr iPhone á Mac með Personal Hotspot.

Ef þú elskar iPhone, þá muntu ❤️ Mac.

Epli

Uppítaka.

Skilaðu inn gjaldgengu tæki og fáðu inneign sem þú getur notað til að kaupa nýja Apple vöru.

Reiknaðu dæmið

Vara

MacBook Air 15" M5

Heildarverð

259.990 kr

Vöruleit Epli

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: