Leiðbeiningar fyrir iCloud

Leiðbeiningar fyrir iCloud

Slökkva á Activation Lock eða Find My

Finndu út hvað þarf að gera ef þú sérð Activation Lock á tækinu þínu eða ef þú þarft að fjarlægja Activation Lock á tæki sem þú ert ekki með í þínum fórum og/eða fer ekki í gang.

Fjarlægja á tæki sem birtir Activation Lock skjá

Fylgdu skrefunum á skjánum til að skrá þig inn með þeim Apple Account aðgangi og lykilorði sem þú notaðir til að setja upp tækið, eða sláðu inn láskóðann á tækinu. Ef þú manst ekki hvað notandanafnið á Apple Account aðgangnum þínum er, prófaðu þá að nota tölvupóstfang eða símanúmer sem þú notar vanalega með Apple .

Finna út notandanafn á Apple Account aðgangi eða endurstetja Apple Account lykilorð.

  • iOS 13 eða iPadOS 13 og nýrri útgáfur

    1. Opnaðu Settings appið.
    2. Veldu nafnið þitt efst á skjánum.
    3. Veldu Find My.
    4. Veldu Find My iPhone/iPad.
    5. Slökktu á Find My iPhone.
    6. Sláðu inn Apple Account lykilorðið þitt og veldu svo Turn Off.

    iOS 12 og eldri útgáfur

    1. Opnaðu Settings appið.
    2. Veldu nafnið þitt efst á skjánum.
    3. Veldu iCloud.
    4. Veldu Find My.
    5. Slökktu á Find My iPhone/iPad.
    6. Sláðu inn Apple Account lykilorðið þitt og veldu svo Turn Off.

    iOS 17 eða iPadOS 17 og nýrri útgáfur með kveikt á Stolen Device Protection

    1. Opnaðu www.iCloud.com/find í Safari á tækinu sjálfu.
    2. Skráðu þig inn með Apple Account aðgangnum, tölvupóstur eða símanúmer, og sláðu inn lykilorðið þitt.
    3. Veldu tækið þitt.
    4. Ýttu á Remove from Account.
    5. Sláðu inn Apple Account lykilorðið til að staðfesta.
  • macOS Ventura 13 og nýrri

    1. Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri  > System Settings. 
    2. Smelltu á nafnið þitt. 
    3. Smelltu á iCloud. 
    4. Skrollaðu niður og ýttu á „Show more apps“.
    5. Smelltu á Find My Mac.
    6. Smelltu á „Turn Off...“ við hlið Find My Mac: On
    7. Sláðu inn Apple Account lykilorðið og smelltu svo á Continue

    macOS Catalina 10.15 - macOS Monterey 12

    1. Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri  > System Preferences.
    2. Smelltu á Apple ID.
    3. Smelltu á iCloud.
    4. Smelltu á Find My Mac. 
    5. Sláðu inn Apple Account lykilorðið og smelltu svo á Continue.

    macOS 10.14 og eldri

    1. Opnaðu Apple valmyndina efst til vinstri  > System Preferences.
    2. Smelltu á iCloud.
    3. Hakaðu frá Find My Mac. 
    4. Sláðu inn Apple Account lykilorðið og smelltu svo á Continue.
    1. Opnaðu Watch appið á iPhone.
    2. Veldu All Watches efst til vinstri.
    3. Veldu litla i takkann við hlið úrsins sem á að fjarlægja. 
    4. Ýttu á Unpair Apple Watch.
    5. Ýttu á Unpair [nafnið þitt] Apple Watch. 
    6. Sláðu inn Apple Account lykilorðið og ýttu svo á Unpair efst til hægri eða Done á lyklaborðinu.
  • iPhone eða iPad

    1. Tengdu tólin við tækið.
    2. Opnaðu Settings appið.
    3. Veldu Bluetooth. 
    4. Ýttu á litla i takkann hægra megin við AirPods sem á að fjarlægja.
    5. Skrollaðu alveg neðst og ýttu á Forget This Device. 
    6. Ýttu á Forget Device til að staðfesta.
    1. Opnaður Find My appið  á iPhone.
    2. Veldu Items flipann neðst á skjánum, veldu svo aukahlutinn sme þú ætlar að fjarlægja.
    3. Hafðu aukahlutinn nálægt símanum.
      Ef aukahluturinn er ekki nálægt símanum getur þú fjarlægt hann, en endurstilla þarf aukahlutinn svo hægt sé að tengja hann öðrum Apple aðgangi síðar.
    4. Veldu Remove Item og fylgdu skrefunum sem birtast á skjánum.
    1. Opnaðu www.iCloud.com/find.
    2. Skráðu þig inn með Apple Account aðgangnum, tölvupóstur eða símanúmer, og sláðu inn lykilorðið þitt.
    3. Veldu tækið sem á að fjarlægja.
    4. Ýttu á Remove from Account.
    5. Sláðu inn Apple Account lykilorðið til að staðfesta.

    Þú getur einnig notast við Find My (eða Find My iPhone) appið á iPhone, iPad eða Mac til að fjarlægja önnur tæki.

    Ef þú sérð ekki Remove from Account hnappinn þarftu að slökkva á tækinu sem þú ætlar að fjarlægja og reyna aftur.

Sértu ekki lengur með aðgang að Apple Account aðgangnum þínum getur þú óskað eftir að slökkt verði á Activation Lock með því að sanna eign þína á tækinu með kaupnótu. Sjá nánar hér: Activation Lock support request.

Fyrirmynd greinar sótt frá Apple 15. febrúar 2024
Leiðbeiningar fyrir AirTag bætt við 19. ágúst 2026

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: