Helstu eiginleikar

• Apple A19 flaga
• 128GB geymsludiskur
• WiFi 7
• Styður 4K upplausn
• HDMI 2.1 tengi*
• Siri fjarstýring með USB-C**

*HDMI snúra seld sér
**USB-C hleðslusnúra seld sér

MLFF4SO/A

Nýtt
Verðlækkun

Apple TV 4K 4th Gen

Verð

54.990 kr

Error

Netfang móttekið

Takk fyrir að hafa samband. Við munum hafa samband um leið og varan er aftur fáanleg.

Væntanlegt

Apple TV 4K (4. kynslóð) er væntanlegt í verslanir 13. nóvember.

Stærð

Hvar fæst varan?

  • Laugavegur

  • Smáralind

  • Vefverslun

Ómissandi aukahlutir

Segðu það.  Það er komið.

Apple TV 4K er nú með þrjá innbyggða hljóðnema sem nema rödd þína úr fjarlægð. Þú getur því talað við Siri og stjórnað tækinu með röddinni einni saman. Kveiktu á þætti, spilaðu tónlist eða dempaðu lýsinguna, allt án þess að teygja þig eftir fjarstýringunni. Og þú getur verið viss um að friðhelgi þín sé tryggð í hverju skrefi.

Apple TV 4K með innbyggðum hljóðnemum

Heimabíó

Hljóð sem umvefur þig.

Apple TV 4K með fjórum HomePod hátölurum

Surround-hljóð breytir stofunni í þitt eigið kvikmyndahús. Tengdu fjóra HomePod hátalara við Apple TV 4K og láttu þrívíðan hljóm umlykja þig, svo þér líði eins og þú sért staddur í miðri atburðarásinni. Apple TV 4K samstillir hljóminn sjálfkrafa við hátalarana og fyllir herbergið af kvikmyndalegum hljómi.

Whole Room Audio dreifir hljómnum jafnt úr fjórum HomePod hátölurum. Það hentar jafnt vel í partíið sem á leikdaginn. Hvort sem þú hlustar á tónlist eða íþróttalýsingu heyrist allt skýrt, hvar sem þú ert í herberginu

Sjónvarp og svo miklu meira

Besti sætið í húsinu.

Uppgötvaðu margverðlaunaðar Apple Original-þáttaraðir og kvikmyndir, ásamt öðru vinsælu efni á Disney+, Prime Video, Netflix, HBO Max, ESPN og fleiri veitum. Njóttu tónlistar á nýjan hátt, skemmtu þér í frábærum leikjum og taktu krefjandi æfingar á heimsmælikvarða allt frá Apple. Skoðaðu líka þúsundir annarra vinsælla forrita í App Store. Apple TV 4K býður upp á miklu meira en bara sjónvarpsefni.

Betra saman

Fullkomin viðbót
við sjónvarpið.

Photos á Apple TV 4K

Myndir. Með iCloud sameiginlegu myndasafni getur öll fjölskyldan auðveldlega notið mynda hvers annars á stærsta skjánum á heimilinu. Þú getur séð myndir sem aðrir hafa bætt við sameiginleg albúm og jafnvel sett minningar sem skjáhvílu.

FaceTime. FaceTime forritið í Apple TV 4K tengist iPhone eða iPad og færir símtölin á stóra skjáinn með Continuity Camera. Tilkynningar um símtöl birtast í sjónvarpinu.

FaceTime á Apple TV 4K

Siri Remote með Find My. Stjórnaðu Apple TV 4K með snertifletinum eða notaðu röddina með sérstökum Siri hnappi. Ef fjarstýringin týnist geturðu fundið hana með Find My eða sagt „Siri, find the remote“ til að láta hana gefa frá sér hljóð.

Siri Remote

iPhone. Spilaðu, pásaðu, spólaðu áfram eða til baka og stilltu hljóðstyrkinn í sjónvarpinu allt af læstum skjá iPhone eða í Control Center. Þú getur keypt efni eða skráð þig inn í forrit með Face ID. Precision Finding hjálpar þér að finna Siri Remote.

Precision Finding á iPhone
AirPods

AirPods. Tengdu AirPods við Apple TV 4K og njóttu persónulegrar hlustunar með Spatial Audio. Eða deildu stundinni með vini og tengdu annað par af AirPods, hvor hlustandi stillir sinn hljóðstyrk.

Skjávari á Apple TV 4K

Skjáhvílur. Snati og Kalli skemmta allri fjölskyldunni í fjörugum hreyfimyndum, en hrífandi myndefni flytur þig á stórkostlega staði hér á jörðu og úti í geimnum. Skjáhvílurnar geta líka sýnt myndir af dýrmætum augnablikum og fólkinu sem þér þykir vænt um.

SharePlay á Apple TV 4K

SharePlay. Horfðu á kvikmyndir og sjónvarpsþætti, eins og Pluribus, í Apple TV á sama tíma og vinir þínir. Með Split View geturðu fylgst með hlátri, gráti, köllum og andvörpum allra án þess að missa af neinu í þættinum.

 

tv

3 mánuðir af Apple TV fylgja frítt með hverju keyptu Apple TV 4K.

Þættir og myndir á Apple TV
Epli

Uppítaka.

Skilaðu inn gjaldgengu tæki og fáðu inneign sem þú getur notað til að kaupa nýja Apple vöru.

Reiknaðu dæmið

Vara

Apple TV 4K 4th Gen

Heildarverð

54.990 kr

Leit

Hvernig tæki ertu með?

Útreikningur

Miðað við þessar upplýsingar er verðmatið á þínu tæki: